Frábært færi og fjöldi gesta í brekkunum 20. nóvember 2006 06:30 Þessir krakkar voru meðal þeirra sem nýttu sér opnun skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli um helgina. Borgarbörnin eru ekki jafn heppin, en eitthvað er í að skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli verði opnuð. MYND/Hnefill
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opnað almenningi um helgina, í fyrsta skipti í vetur. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, forstöðumanns skíðasvæðisins, var veðrið gott og skíðafærið frábært alla helgina. Ekki var nægur snjór á skíðasvæðunum í Bláfjöllum og Skálafelli til þess að hægt væri að opna þau. „Þetta er óvenju snemmbúin helgaropnun hjá okkur, en snjórinn er frábær og færið gott. Lyfturnar eru opnar frá toppi og niður úr og göngubrautir troðnar,“ segir Guðmundur. „Fólk hefur tekið mjög vel í opnunina, stemningin er góð og nóg af fólki. Það á að halda áfram að snjóa í vikunni þannig að við erum vongóð.“ Friðjón Axfjörð Árnason, rekstrarstjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum og Skálafelli, segir sáralítinn snjó vera í hlíðum svæðisins og ekki tilefni til þess að opna. „Það snjóaði ekki jafn mikið hér og í höfuðborginni, og svo var líka of hvasst til þess að snjórinn héldist á jörðinni. Ef það heldur áfram að snjóa líður að því að við opnum, en við þurfum töluvert meira en þetta til þess að geta troðið og hulið jörðina. Í gær var ekki ástæða til þess að fara út á troðara, jörðin var bara svört og hvít.“
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira