Veður fer batnandi á landinu 17. nóvember 2006 05:30 Hvassviðrið að ganga yfir. Myndin er tekin við Vestmannaeyjar.
Hvassviðrið sem gekk yfir landið í gær er í rénun; vindhraði verður ekki eins mikill í dag, segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Í gær var vindhraði mestur við Lómagnúp sunnan Vatnajökuls, en hann var almennt á bilinu 30 til 40 m/s, en þó fór hann upp í 50 m/s í gærmorgun. Varað var við óveðri á þessu svæði. Vindhraði var annars víða 15 til 20 m/s á Suðurlandi og á Austurlandi. Færð var góð á Suður- og Suðvesturlandi í gær en á Vesturlandi og Vestfjörðum var víða hálka eða hálkublettir á vegum. Veðrið var verst á Norðurlandi og Austurlandi því þar var víða hríðarveður og stórhríð. Ófært var yfir Vopnafjarðarheiði, Fagradal, Sandvíkurheiði, Fjarðarheiði, Oddsskarð, Þverárfjall, Breiðdalsheiði og Öxi. Frostið á landinu var víða á milli fimm og átta stig í gær og segir Þorsteinn að reikna megi með álíka miklu frosti í dag. Nokkur snjókoma og éljagangur var víða á landinu í gær, sérstaklega á Vestfjörðum, en Þorsteinn segir að reikna megi með minni ofankomu í dag. Í dag verður hæg norðanátt víða á landinu og vindhraði um 5 til 8 m/s. Þó verður áfram hvassviðri á Austurlandi að sögn Þorsteins.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira