Lífið

Venni „páer“ á skjáinn í haust

Vernharð Þorleifsson
Hefur skrifað grínþætti sem sýndir verða á Skjá einum næsta vetur.
Vernharð Þorleifsson Hefur skrifað grínþætti sem sýndir verða á Skjá einum næsta vetur.

Draumur júdókappans Vernharðs Þorleifsson rætist í haust þegar grínþættir sem hann skrifaði handrit að verða sýndir á Skjá einum. Fréttablaðið greindi frá þessu uppátæki Vernharðs fyrir nokkru en nú er allt að verða klappað og klárt.

„Ja, ég vona að fólk taki þessu sem gríni,“ sagði Venni léttur í bragði þegar hann var beðinn um að lýsa þáttum sínum. Þeir munu heita Venni páer og fjalla um samnefndan mann sem er einkaþjálfari. Hann hefur ívið meira sjálfstraust en hann hefur efni á svo útkoman gæti orðið eitthvað í líkingu við The Office að sögn Venna.

Þættirnir gerast í World Class þar sem Venni „páer“ starfar sem einkaþjálfari. Hann hefur þó bara einn kúnna svo að ekki er hægt að segja að honum gangi allt í haginn. „Venni er alltaf að leita að viðurkenningu en það gengur erfiðlega,“ segir nafni hans og skapari sem mun sjálfur leika aðalhlutverkið. „Já, ég leik Venna. Það var allt reynt til að koma í veg fyrir það en þetta varð útkoman.“

Vernharð Þorleifsson er kunnastur fyrir hæfni sína í júdó en hann hefur einnig starfað sem fasteignasali auk þess sem hann skrifaði Bakþanka í Fréttablaðið um hríð. Venni hefur eytt síðustu tveim árum í að skrifa þættina í hjáverkum. „Pilot“-þáttur var tekinn upp í fyrra og þá fóru Jón Gnarr og Álfrún Örnólfs með hlutverk. Þau verða þó ekki með í þáttaröðinni, en tökur á henni hefjast í ágúst. Þættirnir verða átta talsins og þessa dagana er verið að ganga frá ráðningu leikara. Ætla má að sýningar á Venna „páer“ hefjist á Skjá einum í október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.