Lífið

Kvikmynd um ævi Buckleys

Jeff Buckley Ævi söngvarans verður gerð skil í kvikmynd. Ekki hefur verið ákveðið hver leikur hann.
Jeff Buckley Ævi söngvarans verður gerð skil í kvikmynd. Ekki hefur verið ákveðið hver leikur hann.

Ævi tónlistarmannsins Jeff Buckley verður gerð skil í kvikmynd. Það er leikstjórinn Brian Jun sem ætlar að gera myndina, en hann vinnur hana í nánu samstarfi við móður söngvarans, Mary Guibert, sem er titluð framleiðandi.

Þetta er í annað sinn sem áform um slíka mynd eru kunngjörð. Í fyrra tryggði handritshöfundurinn Train Houston sér kvikmyndaréttinn að ævisögu Jeffs Buckley, og pabba hans Tim Buckley en ekkert hefur orðið úr myndinni.

Mamma Jeffs Buckley á útgáfuréttinn af öllum lögum sonar síns og hefur stýrt því búi af mikilli röggsemi. Henni leist ekki nema mátulega á þegar einhver annar ætlaði að fara að græða á tónlist sonar hennar: "Ég hef fengið ótal tilboð um gerð kvikmynda í gegnum árin. Allar þær myndir virtust ekki ætla að gefa raunsæja mynd af Jeff svo ég hafnaði þeim. En þegar það leit út fyrir að gerð yrði mynd án minnar þátttöku fór ég að skoða málið aftur," segir Mary Guibert. Hún segist hafa sannfærst um að hægt væri að gera alvöru mynd um son sinn eftir að hún sá myndir á borð við Ray og Walk the Line.

Reuters-fréttastofan greinir frá því að mikið verði lagt upp úr sambandi Jeffs Buckley við föður sinn, tónlistarmanninn Tim Buckley sem lést árið 1975. Þeir hittust aðeins tvisvar.

Sjálfur lést Jeff Buckley árið 1997 þegar hann drukknaði. Ekki hefur verið ákveðið hver leikur Jeff Buckley í myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.