Staldrar við innan veggja leikhússins 18. júní 2006 11:00 forðist okkur Sýningin hefur vakið mikla athygli og vann til tveggja verðlauna á Grímunni sem haldin var á föstudaginn.
Þetta kom mér mjög á óvart og mér datt ekki í hug að ég mundi taka þetta enda fannst mér hinir sem voru tilnefndir líklegri til vinnings, segir Hugleikur Dagsson en hann var valinn leikskáld ársins á uppskeruhátíð leikhússins, Grímunni, á föstudag fyrir sýninguna Forðist okkur. Sýningin var sett upp í samvinnu við leikhópinn Common Nonsense og nemendaleikhúsið í Borgarleikhúsinu. Verkið vann einnig til verðlauna danshöfundarverðlauna ársins, en það var Ólöf Ingólfsdóttir sem sá um dans og hreyfingar í verkinu. Hugleikur hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtilegar og kaldhæðnar myndasögur, en bækurnar Forðist okkur, sem er safnrit, og Fermið okkur komu út hjá JPV útgáfunni og hafa bækurnar slegið í gegn. Ég er með eina myndasögu í vinnslu sem kemur út í ágúst. Hún ber nafnið Eineyðgi kötturinn Kisi og hnakkarnir, og er ég að vinna í henni núna. Hugleikur ætlar að staldra við innan leikhússins og er þessa dagana að skrifa söngleik sem ber nafnið Leg og fjallar um unga ófríska stúlku. Leikritið átti upphaflega að vera myndasaga á ensku með heitinu Abortion en Hugleikur ákvað að breyta henni yfir í söngleik. Þetta var hugmynd sem ég og Davíð Þór Jónsson, sem sá um tónlistina í Forðist okkur, vorum búnir að vera með í maganum lengi og ákváðum láta slag standa í vor enda vinnum við vel saman. Sýningin verður sett upp í Þjóðleikhúsinu og er það í fyrsta sinn sem Hugleikur vinnur í elsta leikhúsi landsins og líkar honum það vel. Þetta snjalla leikskáld ætlar ekki að leggja land undir fót í sumar enda hefur hann í mörgu að snúast og ætlar hann ekki að halda upp sigurinn eitthvað sérstaklega. Ætli ég horfi ekki á bresku þættina A bit of Fry and Lorry, snilldarþætti sem mér voru að áskotnast og kannski ég fái mér eitthvað kjöt að borða um helgina, segir Hugleikur ánægður með titilinn leikskáld ársins.
Menning Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Sjá meira