Sniglabandið leikur óskalög fyrir Akureyringa 18. júní 2006 10:00 Sniglabandid Ætlar að skemmta Norðlendingum með lifandi tónlist á Rás 2.
Hljómsveitin Sniglabandið verður með vikulega skemmtiþætti eftir hádegi á sunnudögum á Rás 2 þar sem sveitin bregður á leik í beinni útsendingu með alls konar sprelli undir dyggri stjórn útvarpsmannsins Magnúsar Einarssonar. Þetta er fimmta sumarið sem hljómsveitin skemmtir hlustendum stöðvarinnar sem geta hringt inn og beðið sveitina um óskalög sem hún svo spilar í beinni. Auk óskalaganna verða ýmsir fastir liðir á boðstólum eins og hljóðfæri dagsins, pistill vikunnar, útvarpsleikrit og í lok hvers þáttar geta hlustendur komið með uppskrift að lagi sem hljómsveitin flytur svo í næsta þætti. Það er annars nóg um að vera hjá sveitinni. Innan skamms kemur út tvöföld geislaplata sem á eru skemmtileg brot úr þáttum Sniglabandsins á árunum 2003-2004 auk sautján nýlegra laga. Sniglabandið verður einnig eitthvað á ferð um landið í sumar og spilaði sveitin á þjóðhátíðarballi á Akureyri á skemmtistaðnum Rocco, sem gekk áður undir nafninu Oddvitinn. Í skemmtiþætti dagsins í dag mun sveitin senda beint út frá skemmtistaðnum og Akureyringum gefst kostur á að mæta á staðinn og biðja um óskalög og jafnvel syngja í beinni með hljómsveitinni. Þátturinn er á dagskrá milli kl. 14 og 16 svo það er bara að hrista af sér þjóðhátíðardagsþynnkuna og mæta á svæðið.
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira