Lífið

Skapandi tónlistarstarf fyrir alla

Sofia López-Ibor Alino Kramhúsið hefur staðið fyrir námskeiðum fyrir kennara í 23 ár og í þetta skiptið er aðalkennarinn Sofia Alino frá Spáni.
Sofia López-Ibor Alino Kramhúsið hefur staðið fyrir námskeiðum fyrir kennara í 23 ár og í þetta skiptið er aðalkennarinn Sofia Alino frá Spáni.

Sofia López-Ibor Alino, einn þekktasti Orff kennari í dag, mun vera aðalkennari á kennaranámskeiðum sem Kramhúsið stendur fyrir í vikunni. Orff nálgunin byggir á skapandi tónlistarnámi fyrir alla, að nemendur séu að skapa tónlist sjálfir. Það er mikið lagt út af orðræðu, til dæmis eru rímur settar í tónlist og mikið unnið í gegnum skapandi hreyfingu.

Helsta markmiðið hjá okkur er að allir geti skapað tónlist og að hún sé samofin tungumáli og hreyfingu, segir Nanna Hlíf Ingvadóttir tónmenntakennari en hún kennir á námskeiðunum og er einn skipuleggjenda. Carl Orff var þekkt þýskt tónskáld á síðustu öld og er hugmyndafræði hans um tónmenntakennslu viðurkennd um heim allan. Orff lét meðal annars endurhanna hljóðfæri sem nú er að finna í flestum tónmenntaskólum. Sofia López-Ibor Alino er frá Madríd en kennir nú í San Francisco.

Fyrra námskeiðið hefst í Kramhúsinu 19. júní og er það tileinkað leikskólakennurum, leiðbeinendum eða grunnskólakennurum og þeim sem vinna að skapandi starfi með börnum og unglingum. Námskeiðið fyrir tónmenntakennara hefst 22. júní.

Aðrir kennarar á námskeiðunum eru Guðbjörg Arnardóttir grunnskóla- og listdanskennari og fjöllistakonan Ilmur María Stefánsdóttir en ennþá eru örfá sæti laus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.