Lífið

Artside fær fjórar stjörnur

Tónlist Artside
Tónlist Artside

Íslensk/danska hljómsveitin Artside fékk nýverið fjórar stjörnur í danska blaðinu Gaffa fyrir þriggja laga demó-skífu sína.

Demóið var valið það besta í júnímánuði og af því tilefni spilaði sveitin á tónleikum í Kaupmannahöfn síðastliðinn föstudag við góðar undirtektir. Voru þetta aðeins aðrir tónleikarnir í sögu sveitarinnar, en hún hefurverið starfandi í núverandi mynd í þrjá mánuði.

Að sögn gítarleikarans og aðallagahöfundar Artside, Jóhanns, á sveitin nóg af efni fyrir heila plötu. Við ætlum að komast inn í stúdíó sem fyrst að taka upp plötu og spila síðan sem mest, segir hann. Við erum með tíu laga tónleikaprógram en æfum oftast nýtt lag á hverri æfingu. Bætir hann því við að tónlistin sé undir sterkum áhrifum frá bresku rokki og róli.

Tveir af stofnmeðlimum Artside, þeir Jóhann og söngvarinn Kristján, voru áður í hljómsveitinni Oblivius heima á Íslandi, sem starfaði í tæp tvö ár. Fyrir tveimur árum fóru þeir í Lýðháskólann í Danmörku og hafa ílengst þar síðan. Auk þeirra eru í nýju sveitinni trommarinn Raggi og danski bassaleikarinn Andy.

Jóhann býst við frekara tónleikahaldi á næstunni. Hún er búin að vekja mikla athygli þessi grein í Gaffa og það er búið að bóka tónleika út um alla Danmörku, segir hann og sér fram á bjarta tíma með Artside. Nánari upplýsingar um sveitina má finna á artside.dk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.