Valgeir Guðjónsson snýr aftur eftir langt hlé 16. júní 2006 16:00 Jakob Frímann Segir að Stuðmenn séu frjóir að venju og frá þeim streymi ný lög. MYND/hörður
Þann 17. júní hefja Stuðmenn sína árlegu landsyfirreið en fyrsti viðkomustaður verður höfuðstaður Norðurlands, Akureyri. Þetta hefur verið árviss viðburður hjá hljómsveitinni sem nú birtist landsmönnum með heldur breyttu sniði. Eins og flestum ætti að vera kunnugt er Ragnhildur Gísladóttir endanlega hætt í hljómsveitinni og Hildur Vala Idol - stjarna getur ekki ferðast með þeim félögum líkt og hún gerði með góðum árangri fyrir ári síðan. Í hlutverki þessara stórsöngkvenna er þó engin aukvissi því Birgitta Haukdal mun kyrja öll helstu lögin ásamt Agli Ólafssyni. Stóru tíðindin eru hins vegar þau að Valgeir Guðjónsson mun ferðast með þessari gömlu hljómsveit sinni sem hann sagði skilið við fyrir mörgum árum. Þessi kjölfesta hljómsveitarinnar hefur ekki komið saman síðan 1984 þegar Ragnhildur Gísladóttir gekk til liðs við okkur, segir Jakob Frímann Magnússon, hljómborðsleikari Stuðmanna. Auk Birgittu og Valgeirs ætlar stórleikarinn Stefán Karl Stefánsson einnig að ferðast með sveitinni en hann er staddur á landinu við upptökur á Latabæ en er annars búsettur í Los Angeles. Stefán hljóp í skarðið fyrir Egil þegar við fórum til Danmerkur og stóð sig með stakri prýði, útskýrir Jakob þegar hann er inntur eftir veru leikarans. Stefán er mikill tónlistamaður og getur bæði spilað á trommur og píanó, bætir Jakob við. Svo getur hann umbreytt sér í jafn fjölbreyttar persónur og Gylfa Ægis til Jónasar Jónasson þannig í raun má segja að í honum höfum við fjórtán gestasöngvara, segir Jakob. Stuðmenn er því orðin ansi stór hópur, í raun hálfgerður stuðflokkur, þótt Jakob vilji sem minnst tengja þessa sögufrægu hljómsveit við pólítíkina. Við getum í það minnsta sagt að þetta sé fléttulisti í þremur efstu sætunum, segir Jakob og hlær. Annars hafa þessar breytingar orðið til þess að ferskir vindar blása um okkur og ný lög flæða fram, bætir hann við og segir að þeir muni jafnframt taka lög sem aldrei hafa verið flutt áður og setja þau í nýjan búning.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira