Lífið

Sign spilar órafmagnað í Reykjavík

Sign Hljómsveitin Sign er á leiðinni til Bretlands um helgina.
Sign Hljómsveitin Sign er á leiðinni til Bretlands um helgina.

Hljómsveitin Sign kemur fram á sumartónleikaröð Reykjavík Grapevine og Smekkleysu í dag. Sign spilar órafmagnað í Smekkleysubúðinni kl. 17.00 og er frítt inn. Sign kemur síðan fram á Amsterdam um kvöldið ásamt Pan og Truckload of Steel. Aldurstakmarkið er 18 ára og er aðgangseyrir 800 krónur.

Á morgun spilar Sign síðan í Tryggvaskála á Selfossi klukkan 20.00. Miðaverð er 1000 krónur.

Á laugardaginn halda Sign-liðar síðan til Bretlands þar sem þeir koma fram á Middlesborough-tónleikahátíðinni á sunnudag ásamt því að spila á Water Rats í London daginn eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.