Freyr Gígja Gunnarsson skrifar um kvikmyndir Al Pacino sem Han Solo? 15. júní 2006 10:30
Að velja í hlutverk getur reynst leikstjórum erfitt. Aðalhlutverkið þarf að vera vel mannað af leikara sem kvikmyndahúsagestinum finnst vera trúverðugur í hlutverkinu. Peter Jackson reyndist vera snjall þegar hann réð Viggo Mortensen í hlutverk Aragorns. Írski leikarinn Stuart Townsend hafði hins vegar verið í föruneytinu í fjóra daga sem hinn aðalsborna hetja áður en Jackson gerði sér grein fyrir að leikarinn þyrfti að vera eldri. Eflaust finnst flestum ómöglegt að sjá einhvern annan en Marlon Brando í hlutverki guðföðursins Don Vito Corleone. Engu að síður vildi kvikmyndaverið fá Frank Sinatra í hlutverkið. Taldi hann geta trekkt betur að. Þeir fengu því hland fyrir hjartað þegar Francis Ford Coppola stakk uppá ólíkindartólinu Brando sem var þekktur fyrir sérvisku og gat tekið uppá hverju sem er á meðan tökum stóð. Þegar horft er á Guðföðurinn er hálf asnalegt að sjá einhvern annan fyrir sér en Brando í því hlutverki. Leikarinn tróð bómul uppí kjaftinn á sér og náði fram svipbrigðum og túlkun sem eiga vafalítið ekki eftir að sjást aftur á hvíta tjaldinu. Harrison Ford var klæðskerasniðin fyrir Han Solo - hlutverkið í Stjörnustríðsmyndunum fyrri en það var upphafið að glæstum ferli hans sem Hollywood - stórstjarna. Nánast ómöglegt er fyrir mig að sjá einhvern annan í hlutverki þessa flugstjóra sem reif kjaft við allt og alla og var hundeltur af óþjóðalýð í sólkerfinu. George Lucas vildi hins vegar ekki vinna með einhverjum sem hafði leikið í kvikmynd eftir hann áður og Ford var því útilokaður í fyrstu vegna hlutverks síns í American Graffiti. Lucas bauð leikurum á borð við Kurt Russell, Nick Nolte, Christopher Walken og Al Pacino að leika Han Solo. Leikstjórinn íhugaði meðal annars að gera Han Solo svartan og hafði nánast ráðið Glynn Turman í hlutverkið. Lucas hætti hins vegar við allt saman og fékk Harrison Ford til að fljúga með Chewbacca, Luke Skywalker og prinsessuna Leiu. Hvort Stjörnustríðið hefði orðið eitthvað verra ef Al Pacino hefði hlaupið undan stormsveitarmönnununm með Alec Guiness verður hins vegar aldrei skorið úr um.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira