Fegurðardrottningin stödd á HM í Þýskalandi 14. júní 2006 12:00 Unnur Birna Var gerð að guðmóður tveggja sebrahesta sem fæddust í dýragarðinum í Varsjá en brá sér síðan á leik Brasilíu og Króatíu á HM í Þýskalandi. Mynd/Ap
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir kom sér í heimsfréttirnar því Reuters fréttastofan greindi frá því í gær að fegurðardrottningin væri mætt á Heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi sem nú tröllríður sjónvörpum landsmanna. Þar var hún spurð hver væri fallegasti maður keppninnar og ekki stóð á svarinu. „David Beckham. Hann hefur allt, útlitið, hárið og línurnar, Beckham er hinn dæmigerði metró - sexual maður,“ svaraði Unnur Birna en bætti því við hún myndi seint fara á stefnumót með fyrirliða enska landsliðsins. „Ég er ekki mikið fyrir fræga karlmenn, vil heldur einhverja sem eru jarðbundnir,“ sagði Unnur Birna og svaraði því jafnframt til að hún væri á lausu. Unni Birnu var boðið á leik Króatíu og Brasilíu á HM sem háður var í gærkvöldi og Fréttablaðið náði tali af henni fyrir herlegheitin. „Ég er búin að vera á leikvanginum í dag í myndatökum og viðtölum, brasilísku stuðningsmennirnir eru komnir og það var ólýsanlega stemmning hjá þeim, tónlist, söngur og trommur. Þetta verður örugglega svakaleg upplifun,“ sagði Unnur Birna. Hún var á VIP svæði leikvallarins sem gestur Huyndai ásamt aðstoðarmanni frá Miss World. „Það verður matur á undan og svaka flott enda hef ég lúmskt gaman af fótbolta,“ segir Unnur Birna. Hún flaug til Berlínar frá Varsjá í Póllandi þar sem hún var viðstödd verðlaunaafhendingu ásamt forseta Póllands. Í Póllandi lenti hún í þeirri skemmtilegu stöðu að verða guðmóðir tveggja sebrahesta sem fæddust fyrir tveimur vikum í dýragarði þar á bæ. Sebrahestarnir voru skírðir eftir guðmóður sinni sem einnig var viðstödd skírnina. „Það fylgdi ekkert sögunni hvort dýrin væru karlkyns eða kvenkyns, þau fengu bara nöfnin U og B. Þau hjá Miss World kalla mig það, hafa gert það alveg frá upphafi,“ segir Unnur Birna. Framundan er galakvöldverður Rauða krossins í London á föstudag, kynning á tískusýningu í Sviss á laugardag og því næst flakk um Bretland, og í lok næstu viku er ferðinni heitið til Kína. „Ég kem ekkert heim fyrr en í lok júni. Þetta flakk er virkilega skemmtilegt en alveg hörkuvinna. Ég er alltaf á hraðferð og verð þreytt á því að fara út á hverjum einasta morgni máluð og í fínum fötum eins og maður sé að fara á gala ball. Það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri,“ sagði Unnur Birna.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira