Lífið

Útrás íslenskra listamanna

Íslensk hönnun Lampar eftir Bryndísi Bolla verða til sýnis í London um helgina en fleiri íslenskir hönnuðir sýna líka verk sína á stórri hönnunarsýninigu þar í borg.
Íslensk hönnun Lampar eftir Bryndísi Bolla verða til sýnis í London um helgina en fleiri íslenskir hönnuðir sýna líka verk sína á stórri hönnunarsýninigu þar í borg.

Íslendingar eru áberandi bæði í Kaupmannahöfn og London um hvítasunnuhelgina. Fjöldi íslenskra hönnuða tekur þátt í hönnunarsýningu í London sem kallast Grand design. Sýning fer fram í Excel sýningarhöllinni og má nefna nöfn á borð við Bryndísi Bolla, Þórdísi Zoega, Sigurð Gústafsson og Erlu Sólveigu Óskarsdóttur af íslensku hönnuðunum sem verk eiga á sýningunni.

Í Kaupmannahöfn verður haldið sérstakt Airwavespartý á skemmtistaðnum Vega þar sem þar sem Hairdoctor og plötusnúðarnir Jack Schidt (betur þekktur sem Margeir) og Alfons X koma fram ásamt hinum innlendu Who Made Who og plötusnúðunum Jessica og Yebo frá plötutútgáfunni Crunchy Frog, sem var með sérstakt kvöld á Airwaves hátíðinni í fyrra. Íslenskir listamenn láta ekki þar við sitja í borginni því um næstu helgi opnar svo fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir sýningu á verkum sínum á Norðurbryggju Kaupmannahafnar en sýningin spannar 20 ára feril Steinunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.