Silvía fullkomin á sviði 18. maí 2006 06:00 Silvía Nótt í fullum skrúða á fyrri æfingunni í O.A.K.A-höllinni í gær. Kærastinn Rómaríó heldur á henni og félagi hans Pepe Luigi með fána á bakvið. fréttablaðið/valli
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson lagahöfundur var sáttur við frammistöðu dívunnar. "Þetta er Silvía, þetta er það sem hún gerir. Hún gerir mann hræddan stundum en svo býr hún yfir leyndarmáli. Það er eins og hún geti togað í einhverja spotta. Enn er ein æfing eftir og við eigum bara eftir að sjá atriðið verða skemmtilegra." Þorvaldur segir atriðið enn vera að þroskast. "Það er alltaf eitthvað sem þarf að laga. Hlutir í bakvinnslu og lúkki. Það verður neglt á lokaæfingunni á morgun." Silvía lét falska tóna og óánægjuköll Grikkja í höllinni á fyrri æfingunni ekki á sig fá. Þegar blaðamaður Fréttablaðsins náði í skottið á ofurstjörnunni var ekki annað að heyra á henni en að æfingin væri eingöngu undanfari þess sem koma skyldi í kvöld. "Æfingin var æðisleg. Hvað sem ég geri er æðislegt. Ég gæti skitið á sviðið og samt unnið keppnina," sagði Silvía rétt áður en einkabifreið hennar flutti hana á æfingu með Selmu Björnsdóttur. Gamlir taktar gerðu vart við sig og Silvía hefur greinilega ekki látið mótlætið fara í taugarnar á sér. "Þau elska mig." Spurð af hverju gekk svona illa, þegar hún yfirgaf höllina stuttu eftir atriðið, svaraði hún á íslensku. "Bíddu, er ekki allt í lagi." Það eru fyrstu íslensku orð hennar í langan tíma. Silvía svaraði ekki þegar hún var spurð hvort hún væri ennþá veik, en Romario sagði að hún væri með hita. Fjölmargir fylgdust með Silvíu á skjám úr fjölmiðlaherbergi hallarinnar. Menn brostu út í annað og hvöttu hana áfram. Hún hefur ekki misst athyglina eða hörðustu aðdáendurna hér í Aþenu, þrátt fyrir skilningsleysi fjölda Grikkja á persónu hennar. Hún er orðin landsfræg hér í Grikklandi og er beðin um eiginhandaráritanir hvert sem hún fer.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira