Lofar svakalegum tónleikum 29. júní 2006 12:00 ham Rokksveitin Ham, sem lagðist í dvala árið 1994, heldur tónleika á Nasa í kvöld. mynd/Gúndi
Hljómsveitin Ham heldur tónleika á skemmtistaðnum Nasa í kvöld, mörgum íslenskum rokkurum til mikillar gleði. Síðast spilaði sveitin á Hætta-tónleikunum í Höllinni þann 7. janúar en þar áður hitaði hún upp fyrir Rammstein fyrir fimm árum eftir að hafa lagst í dvala árið 1994. "Þetta verður svakalegt," segir Sigurjón Kjartansson, söngvari og gítarleikari Ham, sem lofar hörkutónleikum í kvöld. "Við erum búnir að vera æfa fyrir þessa dagsetningu og þetta lítur vel út. Aðdragandinn að þessum tónleikum hefur tekið kannski fjögur til fimm ár. Það má segja að hlutir sem við gerum mælist frekar í árum heldur en vikum, við erum komnir á þann aldur. Það er oft dálítið erfitt að koma mönnum saman," segir Sigurjón. Ham mun spila nýja lagið sitt, Sviksemi, á tónleikunum en langt er síðan síðast heyrðist nýtt efni frá sveitinni. "Þetta er fullkomlega klassískt Ham-lag. Það er ekki hægt að lýsa því öðruvísi," segir Sigurjón. Samdi hann lagið sjálfur en textann samdi hann með Óttarri Proppé. "Það hefur eiginlega allt sem gott Ham-lag prýðir. Ég er mjög ánægður með það." Sigurjón vill ekki lofa því að annað nýtt lag verði spilað í kvöld, það eigi eftir að koma í ljós. Sveitin hafi engu að síður samið nokkur lög og stefni á að gefa þau út síðar meir á nýrri plötu, sem yrði önnur hljóðversplata Ham. "Það vantar dálítið þessa virkilega góðu Ham-plötu en ég get engu lofað um hvenær hún verður gerð og hvenær hún kemur út," segir Sigurjón, sem segist vera opinn fyrir frekara tónleikahaldi með hljómsveit sinni. Hljómsveitin 9/11"s hitar upp á Nasa í kvöld. Miðasala á tónleikana fer fram á midi.is, í Skífunni og BT.
Menning Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira