Tekur sér ársfrí eftir erfiðan bakuppskurð 29. nóvember 2006 12:00 Silvía Nótt kom, sá og sigraði í fyrra með miklum yfirburðum en hafði ekki erindi sem erfiði í Grikklandi. „
Því miður verð ég ekki með hópnum í ár, er að kljást við afleiðingar af bakuppskurði og verð alveg frá í heilt ár. Menn þurfa að vera við hestaheilsu og gott betur en það til að standa í þessu," segir Jónatan Garðarsson sem hefur verið viðloðandi Evróvisjón-keppnina fyrir hönd Ríkissjónvarpsins síðan 2001. „Ég fór reyndar sem fulltrúi plötufyrirtækja til Sviss árið 1989 þegar Valgeir Guðjónsson og Daníel Ágúst Haraldsson kepptu fyrir hönd Íslands og var síðan ráðgjafi Sigurðar Valgeirssonar þegar lag Selmu Björnsdóttur, All out of Luck, varð fyrir valinu," útskýrir Jónatan sem tók síðan formlega við embættinu ef svo mætti kalla árið 2001. „Starfið felst fyrst og fremst í því að vera tengiliður milli Sjónvarpsins og Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva, sitja fundi og sinna alls kyns skriffinnsku," segir Jónatan sem segist hugsa til þess með söknuði að taka ekki þátt í Evróvisjón. „Ég hef eignast marga góða vini í kringum þetta og það er svekkjandi að komast ekki til Finnlands sem ég hef verið í góðum samskiptum við, Það er með þetta eins og annað, að nýir vendir sópa best," segir Jónatan. Hann hefur sömuleiðis verið í leyfi frá Kastljósinu vegna bakuppskurðarins. Páll Magnússon útvarpsstjóri sagði vissulega eftirsjá í Jónatani. „Hann hefur verið hluti af ásjónu þessarar keppni," segir Páll. Það er Kristín Erna Arnardóttir sem tekur við þessu vandasama starfi. „Hún hefur verið að vinna við áramótaskaupið en það er verið að losa hana út úr því," segir Páll. Alls 188 lög voru send inn fyrir forval Evróvisjón-keppninnar í ár en skilafrestur rann út 16. nóvember. Samkvæmt Rafni Rafnssyni hjá Basecamp er þetta ögn minna heldur en í fyrra sem helgast af því að hver lagahöfundur mátti eingöngu senda inn þrjú lög. „Við reiknum því með að það sé meiri breidd í lagasmíðunum," segir Rafn en leynileg nefnd sest nú yfir lokuðu umslögin og velur þau 24 lög sem keppa um að verða framlag Íslands í Finnlandi en þar fer keppnin fram eftir glæsilegan sigur skrímslasveitarinnar Lordi. Fyrirkomulagið verður með svipuðum hætti og í fyrra en þrjú undankvöld verða í janúar og eitt úrslitakvöld hvar þjóðin kýs framlag sitt. Jónatan Garðarsson er á hægum en góðum batavegi eftir erfiðan bakuppskurð. . Páll Magnússon útvarpsstjóri segir að Jónatan hafi verið hluti af ásjónu Evróvisjón. .
Menning Mest lesið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið „Agaleysið er algjört“ Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Gráhærð og aldrei glæsilegri Lífið Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Lífið Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Lífið Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Lífið „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ Lífið Lively og Baldoni náðu sáttum Lífið Fleiri fréttir Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Gráhærð og aldrei glæsilegri Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins miðaldra Mætti með sextán ára gamalt prump bróður síns „Agaleysið er algjört“ Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lively og Baldoni náðu sáttum Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Sjá meira