Lífið

Ný plata í ágúst

Bob Dylan Goðsögnin Bob Dylan gefur út nýja plötu þann 28. ágúst.
Bob Dylan Goðsögnin Bob Dylan gefur út nýja plötu þann 28. ágúst. MYND/AP
Fyrsta plata bandaríska tónlistarmannsins Bob Dylan í fimm ár, Modern Times, kemur út þann 28. ágúst.

Síðasta plata Dylan hét Love & Theft en þar áður gaf hann út Time Out of Mind árið 1997 sem fékk mjög góðar viðtökur gagnrýnenda.

Dylan, sem er 65 ára, er á leið í tónleikaferð um Evrópu og mun meðal annars spila í Cardiff og Bournemouth dagana 27. og 28. júní.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.