Stefnt að því að semja við Írana 2. apríl 2006 18:45
Stefna bandarískra stjórnvalda er að semja um lausn á kjarnorkudeilunni við Írana en Bandaríkjaforseti hefur þó ekki útilokað aðrar leiðir. Þetta segir Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún segir stöðu mála í deilunni við Írana allt aðra en þegar ákveðið var að ráðst inn Írak. Viðtal Jonatahns Dimbleby við þau Rice, og Jack Straw, utanríkisráðherra Breta, var sýnt á bresku sjónvarpsstöðinni ITV í morgun. Þar viðurkenndi Rice að margir óttuðust að svo gæti farið að Bandaríkjamenn tækju þá ákvörðun að ráðast gegn Írönum vegna kjarnorkudeilunnar við þá. Hún lagði hins vegar áherslu á að sú deila væri ekki sambærileg við það sem gerðist í aðdraganda Íraksstríðsins. Rice bætti því við að Bandaríkjaforseti útilokaði ekki neina leið til lausnar deilunni en hann hefði skuldbundið sig til að semja um lausn hennar. Rætt var um ástandið í Írak og þá staðreynd að margir ráðamenn þar og jafnvel fulltrúar Bandaríkjastjórnar hafi sagt borgarastyrjöld geysa þar. Rice sagði að vissulega væri hætta á borgarastyrjöld í landinu en ástandið væri betra nú en þegar Saddam Hússein var við völd. Rice var einnig spurð hvort hún hefði hug á því að bjóða sig fram til forseta en hún neitaði því. Tveggja daga heimsókn Rice til Bretlands lauk í gær og í morgun komu hún og Straw í óvænta heimsókn til. Þar áttu þau fund með Jalal Talabani, forseta landsins, og Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra. Erfiðlega hefur gengið að mynda starfhæfa ríkisstjórn í landinu síðan kosið var til þings í desember. Kúrdar og súnníar vilja ekki að sjíinn al-Jaafari gegni áfram embætti forsætisráðherra og í dag skoraði leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks í Bandalagi sjía á al-Jaafari að víkja þar sem mikilvægt væri að sátt næðist um næsta forsætisráðherra.
Erlent Fréttir Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira