26 þúsund krónur minnka 4. desember 2005 08:00 Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Stjórnvöld brugðust hratt við þrýstingi um að greiða öryrkjum og eldri borgurum 26 þúsund króna uppbótina. Skerðing hennar kemur hins vegar flatt upp á þá sem hana áttu að fá.
Margir öryrkjar og eldri borgarar eru öskuillir eftir að ljóst varð fyrir helgina að ekki aðeins var umsamin 26 þúsund króna eingreiðsla þeirra skattlögð heldur einnig skert vegna tekna eða annarra skerðingarákvæða. Þeir benda á almenna vinnumarkaðinn sem samdi um 26 þúsund króna launauppbót í desember fyrir alla launamenn óháð tekjum. Ekki stóð til af hálfu stjórnvalda að fylgja samningum á almennum vinnumarkaði sjálfkrafa. Sambærileg uppbót fyrir aldraða og öryrkja hlyti einnig að vera samningsatriði. Málið var tekið upp á alþingi og ákváðu stjórnvöld síðar að verða við kröfum öryrkja og eldri borgara. Nú segja talsmenn eldri borgara að fyrirspurnum og kvörtunum vegna afgreiðslu stjórnvalda rigni inn á skrifstofu Landssambands eldri borgara. Kostar ríkið ekki neitt Leiða má líkur að því að 26 þúsund króna launauppbót í þessum mánuði jafngildi um 2,5 milljarða króna útgjöldum fyrir atvinnuvegina. Pétur Guðmundsson verkfræðingur og eldri borgari hefur reiknað það út að þessi upphæð færi ríkissjóði um 650 milljóna króna óvæntar skatttekjur á þessu ári. Auk þess renni um 340 milljónir króna til sveitarfélaganna í formi útsvars. Ef eldri borgarar, sem fá lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins eru 27 þúsund, hefðu um 700 milljónir króna dugað til þess að greiða hverjum þeirra 26 þúsund króna eingreiðslu. En þeir greiða líkast til um 175 milljónir króna í skatta af þessum 700 milljónum króna og er þá ekki tekið tillit til útsvars til sveitarfélaga. Hreinn kostnaður ríkissjóðs vegna þessa nemur því um 525 milljónum króna. Það er 125 milljónum króna lægri upphæð en ríkið fær í auknar tekjur vegna kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum. Met í lítilsvirðingu Þeir eldri borgarar sem fá skerta tekjutryggingu vegna annarra launa fá einnig sambærilega skerðingu á 26 þúsund krónurnar. Innan við helmingur þeirra fær uppbótina að fullu samkvæmt þessu eða á bilinu átta til tíu þúsund manns. "Við erum afgangsstærð, eins og kom á daginn 1. desember. Uppbótinni er útdeilt með öllum tekjutengingum og skerðingum sem hugsast getur," segir Pétur sem unnið hefur trúnaðarstörf fyrir Landssamband eldri borgara. "Þessi lítilsvirðing ríkisvaldsins á þörf aldraðra fyrir bætur vegna hærri verðbólgu slær öll fyrri met. Í næstu kosningum telja þeir greinilega að ekki þurfi að treysta á fylgi þeirra 17% kjósenda, sem eru reiðir gamir menn og konur." Og skattlagningin eykst. Talnagögn, sem hvorki hafa verið véfengd af sérfræðingum né embættismönnum, benda afdráttarlaust til þess að kjör eldri borgara hafi ekki haldist í hendur við kaupmáttaraukningu síðustu 10 ára. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og aðrir ráðherrar hafa haldið því fram, meðal annars í þingræðum, að ráðstöfunartekjur hafi almennt hækkað um allt að 60 prósent á umræddu tímabili. Gögn samráðshóps á vegum eldri borgara og stjórnvalda sýna að kaupmáttur ráðstöfunartekna hjá drjúgum meirihluta eldri borgara hafi aukist um 10 prósent frá árinu 1995. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Einar Árnason, hagfræðingur Landssambands eldri borgara Fullyrðir að kaupmáttur meirihluta aldraðra hafi aðeins hækkað um 10 prósent á einum áratug meðan aðrir njóti 60 prósenta aukningar. Einar Árnason, hagfræðingur Landssambands eldri borgara, bendir á að í rauninni hafi skattbyrði eldri borgara einnig hækkað á undanförnum árum. Reiknast honum til að skattar sem hlutfall tekna hafi hækkað úr 7,6 prósentum árið 1995 í 9,4 prósent árið 2005. Þar sem skattleysismörk hafa ekki hækkað í takt við hækkandi verðlag og laun er nú greiddur skattur af hærri hluta tekna en áður. Þannig segir skattprósentan ekki alla söguna.
Innlent Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Sjá meira