Menntakerfið beinir ungu fólki á mölina 4. desember 2005 03:30 Anna Kristín Gunnarsdóttir "Ef 20 til 40 ára íbúa vantar, þá fækkar fólki í byggðarlaginu í framtíðinni."
Hlutfallslega helmingi færri íbúar á landsbyggðinni eru með háskólamenntun en á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í svari Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínar Gunnarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, en svörin byggjast á gögnum Hagstofu Íslands. Anna Kristín spurði meðal annars um menntun eftir aldri í þéttbýli og dreifbýli. Í svari forsætisráðherra kemur fram að á höfuðborgarsvæðinu eru tæplega 23 prósent á aldrinum 16 til 74 ára með háskólamenntun en einungis um 12 prósent í sama aldurshópi á landsbyggðinni. "Munurinn er sláandi. Á landsbyggðinni eru um 45 prósent íbúa á aldrinum 20 til 40 ára einvörðungu með grunnmenntun. Á höfuðborgarsvæðinu eru 28 prósent á þessum aldri aðeins með slíka menntun," segir Anna Kristín. Hún kveðst hafa spurst sérstaklega fyrir um aldurshópinn 20 til 40 ára því hann standi meðal annars undir mannfjölgun. Fram kemur að á höfuðborgarsvæðinu eru hlutfallslega fleiri á þessu aldursbili en á landsbyggðinni. "Ef 20 til 40 ára íbúa vantar, þá fækkar fólki í byggðarlaginu í framtíðinni." Anna Kristín bendir á að stefna stjórnvalda sé að fjölga störfum sem krefjast sérhæfingar og menntunar. "Þar sem menntunarstig er lægra er einnig lægra kaup og meiri hætta á atvinnuleysi. Niðurstaða mín er sú að menntakerfið sé stórgallað fyrst það skilar fólki út í lífið með svo litla menntun. Er það góður vitnisburður um menntakerfið þegar nálægt helmingur íbúa landsbyggðarinnar á aldrinum 20 til 40 ára er aðeins með grunnmenntun?"
Innlent Mest lesið „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent „Algjörlega alveg út í hött“ Innlent Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Innlent Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Erlent Umferðin færist inn á íbúðagötur Innlent Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast Innlent Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Erlent Vann á öllum deildum leikskólans Innlent Rannsaka mögulega stunguárás Innlent Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Innlent Fleiri fréttir Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Tillögurnar í leikskólamálum séu vonbrigði og uppgjöf Jörð skelfur í Krýsuvík og Þjóðaröryggisráð fundaði í morgun Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Snorri etur kappi við Bergþór og Ingibjörgu Hafnaði kæru Sameindar vegna Konukots í Ármúla Ingibjörg tekur slaginn við Bergþór Skjálftahrina við Krýsuvík og Kleifarvatn Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Bergþór vill verða varaformaður Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Sjá meira