Innlent

Hundruð bíða eftir meðferð

Tæplega 400 offitusjúklingar eru á biðlista á Reykjalundi. Langflestir bíða eftir að komast í offituaðgerð á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, að sögn Ludvigs Guðmundssonar yfirlæknis. "Af þessum hópi eru bíða um 130 eftir fyrsta viðtali á göngudeild," segir Ludvig. "Þá verða eingöngu 50 á göngudeild og 200 sem bíða eftir að komast hingað í meðferð á dagdeild eða í innlögn. Gera má ráð fyrir að 75-80 prósent allra sem hingað leita fari í maga-hjáveituaðgerðina á Landspítalanum." Ludvig segir offitu alheimsvandamál sem Íslendingar fari ekki varhluta af. Hér hafi offita meðal fullorðinna meira en tvöfaldast á síðustu 20 árum og þjaki meira en fimmtung fullorðinna Íslendinga. Meðal níu ára barna hafi fjöldi offitutilvika fjórfaldast á síðustu 24 árum. Ofþyngd hefur einnig aukist og eru um 65 prósent fullorðinna yfir æskilegri þyngd. Brýnt sé að snúa þessari þróun við, því offitu fylgja alvarlegir sjúkdómar, svo sem sykursýki, kæfisvefn, hjarta- og æðasjúkdómar, stoðkerfisverkir, slitgigt, ýmis krabbamein, ófrjósemi og andlegir sjúkdómar. "Að meðaltali eru þeir sem hingað koma 90 prósentum yfir kjörþyngd," segir Ludvig. "Hér er eingöngu fengist við alvarlega offitu sem ekki er hægt að meðhöndla heima, ef svo má segja. Þá erum við að ræða um konur sem eru 110-140 kíló og karla sem eru 130-170 kíló eða þar yfir." Samkvæmt gildandi þjónustusamningi við heilbrigðisráðuneytið á Reykjalundur að sjá um þjónustu við 25 offitusjúklinga á ári. Það dugir engan veginn til, því fjöldi þeirra sem fengið hafa meðferð hefur aukist úr 45 árið 2001 í 60 á árunum 2003-2004. Að sögn Ludvigs hefur verið farið fram á endurskoðun þjónustusamningsins þannig að hægt sé að taka inn 100-110 manns á ári, sem myndi svara albrýnustu þörfinni. Heildarkostnaður vegna þjónustu Reykjalundar yrði þá 65 milljónir króna á ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×