Glímt við verðbólguna 15. júní 2005 00:01
Alþjóðlegar stofnanir á borð við OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafa undanfarið varað við því að hagkerfi Íslands sé að ofhitna. Einkaneysla landsmanna eykst jafnt og þétt, þó svo að launin okkar hækki ekki að sama skapi, krónan er sterk í samanburði við aðra gjaldmiðla og Seðlabankinn keppist við að hækka stýrivexti til að sporna við verðbólgu. Vaxtamunur við útlönd er kominn upp í 6,5 prósent og erlendir spákaupmenn því farnir að líta hýru auga til þess að braska með íslensku krónuna með ófyrirséðum afleiðingum. Viðskiptahalli við útlönd er óhagstæður upp á marga milljarða króna og aldrei hefur verið auðveldara að fá lán til lengri eða skemmri tíma til að fjármagna einkaneyslu. Húsnæðismarkaðurinn þenst út og húsnæðisverð hefur hækkað vísitölu neysluverðs, sem aftur eykur verðbólgu. Þrátt fyrir allt þetta heldur ríkisstjórnin skattalækkunaráformum sínum til streitu og keppist við að framkvæma. En hvað þýðir þetta allt saman og er hætt við því að illa fari? Nokkur viðvörunarmerki eru uppi sem þarf að taka mark á. Gengi íslensku krónunnar er óvenjuhátt um þessar mundir. Ákvarðanir Seðlabankans um að hækka stýrivexti til að halda verðbólgu niðri stuðla að því að halda genginu háu og stöðugu. Gengið er sá verðmiði sem settur er á íslensku krónuna í alþjóðlegum viðskiptum og því í sinni einföldustu mynd hagstætt fyrir innflutning að gengið hækki en hagstætt fyrir útflutning að gengið lækki. Viðskiptahalli við útlönd er oftast óhagstæður hér á landi, meira er flutt inn en út og því ætti að vera hagur landans að gengið haldist heldur hátt og stöðugt. Á móti kemur að á meðan gengið er hátt fást færri krónur fyrir útfluttan varning og hefur það valdið útflutningsgreinunum nokkrum vandræðum og viðskiptahallinn því aukist. Ef gengið hrynur óvænt er í raun erfitt að segja til um það hverjar afleiðingarnar verða en eflaust kemur það til með að valda vandræðum fyrir flesta þá sem treysta að einhverju leyti á það að gengið haldist stöðugt. Þar má telja heildsala, námsmenn erlendis, útflutningsaðilia og fleiri. Það að hægt sé að treysta því að gengið haldist nokkuð stöðugt er lykilforsenda fyrir árangursríkum viðskiptum við útlönd. Há verðbólga þýðir að við fáum stöðugt minna fyrir hverja krónu og því er mikilvægt að halda henni í skefjum til að það sé jafnvægi á milli kjara og verðlags. Þegar væntingar og neysla aukast hækkar verðlag að sama skapi vegna lögmálsins um framboð og eftirspurn, við fáum minna fyrir hverja krónu og þá er verðbólga. Hlutverk Seðlabankans er að beita stýrivöxtum til að sporna við verðbólgu og þegar þeir hækka verður einfaldlega dýrara að fá skammtímalán, sem leiðir til þess að minni peningar eru í umferð. Á móti kemur að neysluvenjur fólks virðast hafa breyst að því leytinu til að nú taka einstaklingar frekar langtímaneyslulán en áður og stýrivextirnir draga síður úr neyslu. Fari verðbólgan úr böndunum gæti það haft nokkuð alvarlegar afleiðingar fyrir launamenn og vinnumarkað. Almennir kjarasamningar Alþýðusambandsins gera til að mynda ráð fyrir því að samningar falli úr gildi ef verðlag hækkar umfram ákveðin mörk. Því má gera ráð fyrir átökum á vinnumarkaði hækki verðbólga mikið. Með aukinni verðbólgu hefur almenningur svo líka minna á milli handanna til einkaneyslu á sama tíma og áfram þyrfti að greiða af gömlum syndum langtímalánanna. Einföld þumalputtaregla segir að stjórnvöld eigi að halda að sér höndum þegar vel árar, safna í ríkissjóð og veita svo innspýtingu í atvinnulífið þegar aftur harðnar á dalnum. Núna stendur ríkið hins vegar í stórframkvæmdum sem ýta undir þenslu og hefur byrjað að lækka skatta, sem einnig ýtir undir þenslu á sama tíma og vel gengur að öðru leyti í atvinnulífinu. Fjármálaráðherra sagði á fundi á dögunum að við gætum þetta og blés þar með á allar hrakspár. Eins og fyrr segir geta ófyrirséðir hlutir haft áhrif á þróun mála og því mun tíminn einn leiða í ljós hvað verður.
Fréttir Innlent Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira