Innlent

Hlakka til að byrja að ganga

Á mánudag hefst Íslandsganga þeirra Bjarka Birgissonar og Guðbrands Einarssonar hringinn í kringum landið. Þeir félagar ganga undir kjörorðinu "Haltur leiðir blindan, til betra lífs" og vilja þeir vekja athygli á aðstæðum fatlaðra á Íslandi. Undirbúningur hefur staðið síðustu mánuði og allt að verða klárt. Þeir ferðast við þriðja mann því Tómas Birgir Magnússon íþróttakennari og félagi þeirra mun fylgja þeim eftir akandi með fellihýsi í eftirdragi. Í því munu þeir þremenningarnir sofa lungann úr ferðinni. "Við erum orðnir spenntir," segir Guðbrandur og Bjarki leggur áherslu á tilhlökkunina sem býr í brjósti hans. Fáir hafa gengið hringinn í kringum Ísland en sjónvarpsmaðurinn Sveppi er þeim hópi. Bjarki og Guðbrandur skora einmitt á Sveppa og félaga hans í Strákunum að hitta þá einhvers staðar á hringnum og láta þá malla ofaní sig ógeðsdrykk. Íslandsgangan hefst á mánudag og munu þeir félagar leggja af stað frá Sjónarhóli, Háaleitisbraut 13 klukkan 9 árdegis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×