Innlent

Samið um vátryggingavernd

MYND/Róbert
Fulltrúar Hrafnistu, Sjómannadagsráð og fleiri aðilar þeim tengdir hafa skrifað undir samning við Tryggingamiðstöðina hf. um víðtæka vátryggingavernd. Nær hún til ábyrgðartrygginga, eignatrygginga, slysatrygginga og ökutækjatrygginga og er m.a. samið um tryggingar á yfir tuttugu þúsund fermetrum af fasteignum og tryggingar fleiri en eitt þúsund starfsmanna. Meðal tengdra aðila Hrafnistu og Sjómannadagsráðs eru Hjúkrunarheimilið Víðinesi, Hjúkrunarheimilið Vífilsstöðum, Happdrætti DAS, Laugarásbíó, Naustavör og Félagsheimli sjómanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×