Vísar ásökunum kennara á bug 15. júní 2005 00:01
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vísar því á bug að hún hafi hvorki viljað tala við kennara né hlustað á sjónarmið þeirra vegna áforma um að stytta nám til stúdentsprófs. Hún segir það slæmt ef forysta kennara vilji ekki vera með í því umfangsmikla ferli að endurskoða öll skólastigin því um sé að ræða mikla hagsmuni til framtíðar. Þorgerður Katrín segir yfirlýsingar Kennarasambandsins, um að slíta öllu samstarfi við ráðuneytið vegna styttingar framhaldsskólanáms koma á óvart. Hún sé mjög hissa því í rauninni hafi ekkert verkefni á vegum ráðuneytisins á undanförnum þremur árum verið unnið jafn vel og í nánum tengslum við alla hagsmunaaðila. „Það hefur verið mjög opinn aðgangur að þessu mikilvæga verkefni, sem er stytting námstíma til stúdentsprófs, og mikið samráð haft við alla hagsmunaaðila. Sjálf gerði ég mér far um það að fara í alla framhaldsskólana og tala milliliðalaust beint við kennara og skólastjórnendur þannig að ég hef fyrir mína parta lagt mjög mikla áherslu á það að eiga gott samráð við alla sem koma að þessu máli. Það er auðvitað sjálfsagt ef menn eru að sækjast eftir því að fá fund út af þessu tiltekna máli að verða við því við fyrsta tækifæri en formlegt erindi höfum við ekki fengið fyrr en í byrjun júní,“ segir Þorgerður Katrín.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira