Ósætti um yfirlýsingu SÞ 27. ágúst 2005 00:01
Hundrað og áttatíu þjóðarleiðtogar hittast í næsta mánuði til að undirrita tímamótayfirlýsingu um framtíð Sameinuðu þjóðanna. Óvíst er að þeir hafi nokkuð að undirrita þar sem Bandaríkjamenn eru ósáttir við yfirlýsinguna og tilvísanir til þróunaraðstoðar og umhverfisverndar. Tillögurnar sem Bandaríkjamenn eru svo mótfallnir eru frá Kofi Annan og setja Sameinuðu þjóðunum framtíðarmarkið sem átti að samþykkja á fundi í tilefni af sextíu ára afmæli samtakanna í ár. En ýmislegt bendir til þess að ekkert verði af því, þar sem John Bolton, hinn nýji og mjög umdeildi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur gert sjö hundruð og fimmtíu breytingartillögur við upphaflegar tillögur Annans. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur valið einskonar samningahóp skipaðan fulltrúum þrjátíu þjóða sem eiga að bjarga því sem bjargað verður. Viðræðurnar, sem eru hrein neyðarviðbrögð, hefjast þegar í næstu viku og miða að því að leysa deilur um sjö lykilmál, þar á meðal stríð og frið. Breytingar Bolton gjörbylta í raun því sem Annan lagði til og hefur þetta útspil stjórnvalda í Washington vakið litla hrifningu meðal fulltrúa fjölda annarra þjóða sem aðild eiga að Sameinuðu þjóðunum. Bolton leggur meðal annars til, fyrir hönd Bandaríkjanna, að þróunaraðstoð verði dregin saman. Búið er að strika út grein sem hvetur til þess að þjóðir stefni að því að leggja núll komma sjö prósent þjóðarframleiðslu til þróunaraðstoðar fyrir árið 2015. Allar tilvísanir til þúsaldarsamþykktar Sameinuðu þjóðanna, sem Bandaríkin áttu aðild að, hafa verið fjarlægðar. Sömu sögu er að segja um vísanir til Kyoto-samkomulagsins og allt sem fjallar um baráttuna gegn gróðurhúsaáhrifum og hlýnun jarðar. Bolton strikar út allar greinar sem nefna alþjóðlega glæpadómstólinn sem er Bandaríkjamönnum þyrnir í augum og hafna öllu tali um að kjarnorkuvopnaveldi skeri niður vopnabúr sín. Í staðinn eru komnar greinar sem fjalla um mikilvægi baráttunnar gegn hryðjuverkum, mikilvægi frjálsra og opinna markaða og þess að breiða lýðræði út um allan heim. Diplómatar hjá Sameinuðu þjóðunum eru svartsýnir og óttast þrjósku Boltons. Þeir telja að fái Bandaríkin ekki sínu framgengt, verði engin yfirlýsing til að undirrita á fundi þjóðarleiðtoganna hundrað og áttatíu í september.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira