Býður hús fyrir störf að sunnan 5. júlí 2005 00:01
Kaupfélag Eyfirðinga hefur keypt eignarhlut ríkisins á Glerárgötu 36 á Akureyri fyrir rúmar 100 milljónir króna. Tilgangurinn er að freista þess að fjölga störfum á Akureyri með því að bjóða opinberum stofnunum og einkaaðilum afnot af húsnæðinu og eru viðræður þess efnis hafnar. Smáragarður, fasteignafélag BYKO-samsteypunar, gerði ríkinu einnig tilboð í eignina og segir Guðmundur Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri félagsins, að KEA hafi boðið betur. "Smáragarður á aðrar fasteignir sem tilheyra Glerárgötu 36 en við höfum ekki tekið ákvörðun um nýtingu þeirra," segir Guðmundur. Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, segir ekki ljóst á þessu stigi hvernig húsið verði nýtt. "Það er yfirlýst stefna KEA að fjölga störfum á Akureyri og við höfum átt viðræður við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu um opnun starfsstöðva í húsnæðinu. Fyrirtækin eru af margvíslegum toga og hugsanlegt að KEA eignist hlut í einhverjum þeirra. Eitt af þeim fyrirtækjum sem við höfum rætt við er Smáragarður og samstarf við þá kemur vel til greina," segir Benedikt. Í apríl síðast liðnum samþykkti stjórn KEA að óska eftir viðræðum við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið annars vegar og sjávarútvegsráðuneytið hins vegar um flutning á opinberum störfum til Akureyrar og hugsanleg kaup á Íslenskum orkurannsóknum. "Í síðustu viku áttum við góðan fund með Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um þessi mál og í framhaldinu munum við ræða betur við ráðherra," segir Benedikt. KEA hefur lýst yfir áhuga á að meginstarfsemi Fiskistofu og Hafrannsóknarstofnunar flytjist til Akureyrar og er félagið tilbúið að leggja fram verulegar fjárhæðir svo af því megi verða. Að mati stjórnenda KEA er kostnaður við flutning á Fiskistofu einni og sér á bilinu 50 til 100 milljónir króna. "Í næstu viku eigum við bókaðan fund með sjávarútvegsráðherra," segir Benedikt.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Sjá meira