Hrefnuveiði aukin 5. júlí 2005 00:01
Hafrannsóknastofnun ætlar að láta veiða þrjátíu og níu hrefnur í sumar, en tuttugu og fimm voru veiddar í fyrra og þrjátíu og sex árið þar áður. Talsmenn hvalaskoðunarfyrirtækja segja að miklum hagsmunum sé stefnt í hættu með veiðunum. Í fyrra var rannsóknaráætlun sem miðaði að því að kanna fæðusamsetningu hrefnunnar hrint í framkvæmd. Í henni var gert ráð fyrir að veiða 200 hrefnur í vísindaskyni á tveimur árum og tvö hundrað langreyðar og hundrað sandreyðar á sama tímabili, en hætt var við þær veiðar. Í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun segir að vísbendingar séu um að stærð hrefnustofnsins geti haft veruleg áhrif á afrakstursgetu helstu nytjafiska við landið. Talsmenn hvalaskoðunarfyrirtækja hafa þegar lýst andstöðu sinni við fyrirhugaðar veiðar í sumar. Þeir benda á að fyrirhugaðar veiðar muni ekki hafa merkjanleg áhrif á hrefnustofninn þannig að ekkert dragi úr fiskáti hrefnunnar þrátt fyrir veiðarnar. Engin útlfutningsmarkaður er fyrir afurðirnar og innanlandsmarkaður lélegur þannig að borga verði með veiðunum og loks stefni þessar veiðar ferðaþjónustu við hvalaskoðun i hættu. Þar séu miklir hagsmunir í húfi því frá árinu 1995 þegar hvalaskoðunarferðir hófust, hafi ferðamönnum í þeim ferðum fjölgað jafnt og þétt úr nokkrum hundruðum fyrsta árið upp í rúm 80 þúsund manns í fyrra.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira