Brasilíumenn krefjast launa 30. nóvember 2005 21:48
Brasilískir verkamenn hafa leitað á náðir Samiðnar til að innheimta tveggja mánaða ógreidd laun hjá fyrirtækinu Nýgifs. Þeir segjast hafa þurft að leita til íslenskra kollega til að brauðfæða sig á tíðum. Eigandi Nýgifs, sem réð þá hingað á grundvelli þjónustusamninga, segir að þetta sé haugalygi. Alls starfa tíu Brasilíumenn fyrir fyrirtækið Nýgifs við að setja upp gifsveggi í nýbyggingar. Fimm þeirra hafa leitað á náðir Samiðnar og segja Nýgifs reyna að koma þeim úr landi hið fyrsta til að losna við að borga þeim ógreidd laun sem alls nema ríflega þremur komma þremur milljónum króna. Nýgifs fékk Brasilíumennina til starfa hér á þjónustusamningi sem kveður á um að þeir þurfi að starfa að ákveðnum verkum fyrir ákveðið fyrirtæki ytra. Þeir segjast hins vegar hafa komið hingað á eigin vegum og hafa enga samninga, atvinnuleyfi né dvalarleyfi í höndunum. Samiðn telur meintan þjónustusamning vart halda vatni: Brasilíumennirnir segjast á tíðum hafa þurft að leita til íslenskra kollega til að brauðfæða sig. Nú hafa þeir fengið íslenska lögfræðinga til að leita réttar síns fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Eigandi Nýgifs, Magnús Guðmundsson, segir sögu Brasilíumannanna haugalygi. Hann segist hafa ráðið mennina á þjónustusamningi við fyrirtæki í Brasilíu og borgað þeim að fullu, 250 þúsund á mánuði hverjum. Þeir hafi hins vegar eyðilegat verk upp á 25 milljónir og því hafi hann rekið þá en ekki getað endurinnheimt laun sem hann hafði þegar greitt þeim. Eigi hann kvittanir til sönnunar þessu. Magnús segir að svo virðist sem að Trésmíðafélagið standi að aðför gegn fyrirtæki sínu.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira