Skortir samráð um gríðarlega hagsmuni 30. nóvember 2005 03:30 Árni Magnússon félagsmálaráðherra
Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við lánveitingar Íbúðalánasjóðs til banka í kjölfar umfangsmikillar uppgreiðslu lántakenda hjá sjóðnum. Frá september í fyrra fram á mitt þetta ár greiddu lántakendur upp 158 milljarða króna hjá sjóðnum. Í skýrslu sem Ríkisendurskoðun birti í gær segir að tryggara hafi verið að skoða betur heimildir sjóðsins og treysta lagagrundvöll fyrir aðgerðum sjóðsins þegar hann þurfti að tryggja áframhaldandi tekjur þrátt fyrir uppgreiðsluna. Fram kemur að frá áramótum hefur Íbúðalánasjóður með sérstökum samningum lánað bönkum og sparisjóðum 85 milljarða króna til allt að 40 ára á grundvelli reglna og fyrirmæla um áhættustýringu, sem Ríkisendurskoðun telur að séu að ýmsu leyti óskýrar. Ríkisendurskoðun telur hlutverk og umfang starfsemi Íbúðalánasjóðs á húsnæðis- og fjármagnsmarkaði þess eðlis að hafa þurfi víðtækt samráð helstu stjórnvalda um breytingar á starfseminni. "Að mati Ríkisendurskoðunar voru þær aðgerðir sem sjóðurinn taldi sig nauðbeygðan til að grípa til á sviði áhættustýringar haustið 2004 þess eðlis að æskilegt hefði verið að bæði forsvarsmenn hans og félagsmálaráðuneytið ... hefðu haft samráð við þau stjórnvöld sem helst koma að fjárstjórn ríkisins og stjórn efnahagsmála." Ríkisendurskoðun telur að með umræddum lánasamningum við banka og sparisjóði hefði Íbúðalánasjóður stigið ákveðið skref í þá átt að breyta hlutverki sínu í þá veru að verða einnig endurfjármögnunarsjóður. "Langeðlilegast er að löggjafinn sjálfur taki slíkar ákvarðanir enda mjög brýnt að hafa víðtækt pólítísk samráð um slík mál," segir í skýrslunni. Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir skýrsluna staðfesta að Íbúðalánasjóður hafi farið að lögum við gerð lánasamninga og komið í veg fyrir tjón sjóðsins vegna uppgreiðslu lána. Skýrslan geti þó jafnframt gefið tilefni fyrir löggjafann til þess að endurskoða lög um sjóðinn og hlutverk hans.
Innlent Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira