Með 2.000 starfsmenn í Eystrasalti 30. nóvember 2005 06:00 Norræn könnun hefur leitt í ljós að Íslendingar reka um 20 fyrirtæki af þeim 400 norrænu fyrirtækjum sem starfrækt eru í Eystrasaltsríkjunum.
Um 400 norræn dótturfyrirtæki eru starfrækt í Eystrasaltslöndunum, þar af eru tólf íslensk fyrirtæki með hátt í 2.000 starfsmenn. Fimm þessara fyrirtækja starfa í byggingar- eða málmiðnaði. Þetta kemur fram í skýrslu um umsvif norrænna fyrirtækja í Eystrasaltsríkjunum sem norrænu stéttarfélögin létu vinna. Í Eistlandi starfrækja Íslendingar eitt dótturfyrirtæki í byggingariðnaði. Það hefur 110 starfsmenn. Í Lettlandi eru tvö byggingarfyrirtæki með 560 starfsmenn auk málmiðnaðarfyrirtækis með 16 starfsmenn. Í Litháen er íslensk verksmiðja með 100 starfsmenn en búist er við að þeir verði 250 um áramót. Til viðbótar eru sjö önnur fyrirtæki í eigu Íslendinga, eitt í Litháen og sex í Lettlandi. Þessi fyrirtæki hafa samtals rúmlega þúsund starfsmenn. Flest eru fyrirtækin í matvælaiðnaði en eitt framleiðir fatnað og annað er í efnaiðnaði. Jyrki Raina, framkvæmdastjóri norræna málmiðnaðarsambandsins Nordiska Metall, segir að það hafi komið norrænu samböndunum á óvart hversu stór íslensku fyrirtækin séu í Eystrasaltslöndunum. Nú sé það verkefni félaganna að ákveða hvernig eigi að nálgast þau og bæta kjör þessara starfsmanna. Í langflestum tilfellum eru starfsmenn íslensku fyrirtækjanna ekki í stéttarfélögum. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, segir í fréttabréfi félagsins að næsta verkefni verði að afla nánari upplýsinga um starfsemi fyrirtækjanna, hvort þau hafi gert kjarasamninga og virði almennar leikreglur á vinnumarkaði.
Innlent Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Sjá meira