Herinn vill kaupa þjónustu 30. nóvember 2005 09:00 Varnarliðið vill kaupa heilbrigðisþjónustu af Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Fulltrúar bandaríska hersins og herspítalans á Keflavíkurflugvelli hafa frá því í sumar margsinnis komið að máli við ráðamenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til að kynna sér aðstöðu og kanna hvaða heilbrigðisþjónustu mætti kaupa af henni. Þetta segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Fréttablaðið greindi frá því í gær að viðræður stæðu yfir milli fulltrúa varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli annars vegar og Landspítala - háskólasjúkrahúss hins vegar um að spítalinn taki að sér aukna sjúkraþjónustu fyrir varnarliðsmenn þar sem leggja eigi herspítalann á Vellinum niður sem slíkan. "Ástæðan fyrir því að þeir eru að leita eftir þjónustu er fyrst og fremst sú að þegar flugherinn tekur við af sjóhernum á næsta ári mun sjúkrahús þeirra loka því að bandaríski flugherinn rekur almennt ekki sjúkrahús í Evrópu," segir Sigríður. "Heilsugæsla mun áfram verða veitt á Vellinum. Á undanförnum vikum hafa sérfræðingar varnarliðsins komið hingað á HSS og hitt lækna og annað starfsfólk til að kynna sér starfsemina. Þeir hafa lagt fram beiðni um að HSS veiti meðal annars alla lyflæknisþjónustu, almenna skurðlæknisþjónustu, kvensjúkdómaþjónustu, almenna bráðaþjónustu og veiti ráðgjöf í lyflækningum og barnalækningum. En þar sem HSS býður ekki upp á fullkomnar vaktir á skurðstofu alla daga ársins vildu þeir ekki að fæðingaþjónustu yrði beint til okkar. Nú á fimmtudaginn er von á yfirlækni ameríska flughersins í Evrópu ásamt fleiri fulltrúum hersins til að skoða aðstöðu og hitta starfsfólk á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja."
Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira