Innlent

Fimm á slysadeild eftir árekstur

Maður á miðjum aldri liggur mikið slasaður á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir árekstur jeppa og fólksbíls í Hverárdölum seinni partinn í gær. Fimm voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn, fjórir farþegar úr jeppanum auk mannsins. Maðurinn var einn í fólksbílnum þegar bílarnir rákust saman en fjölskylda var í jeppanum. Þau sluppu lítið meidd að sögn vakthafandi læknis. Tækjabíl slökkviliðsins í Hveragerði þurfti til að klippa einn hinna slösuðu úr flaki annarrar bifreiðarinnar. Tildrög slyssins voru ekki ljós þegar blaðið fór í prentun en lögreglan á Selfossi rannsakar málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×