FH sigraði á seiglunni 1. júlí 2005 00:01
Leikur FH og Fram fór mjög rólega af stað og var fyrsta mark FH einnig fyrsta skot þeirra að marki. Atli Viðar Björnsson fór reyndar illa af ráði sínu á 17. mínútu eftir að hafa komist einn inn fyirr vörn Fram. Hann hefði átt að skjóta sjálfur en gaf þess í stað boltann á Ólaf Pál Snorrason sem var vissulega í góðu færi en rangstæður. Framarar áttu einnig sín færi og voru síst lakari aðilinn í fyrri hálfleik. Markaskorari FH, Auðun Helgason, var reyndar nærri því að skora sjálfsmark stuttu eftir eigið mark en slapp með skrekkinn. Það leit út fyrir að FH-ingar ætluðu að gera út um leikinn er þeir fengu dæmda vítaspyrnu á 53. mínútu er Kristján Hauksson braut á Allan Borgvardt. Tommy Nielsen tók vítið en Gunnar Sigurðsson varði slaka spyrnu hans. Ekki fyrsta vítið sem Gunnar ver í sumar enda klárlega vítabani mótsins til þessa. Þess í stað jöfnuðu Framarar með góðri sókn en Þórhallur Dan Jóhannesson átti góða rispu upp vinstri kantinn og gaf beint á kollinn á Ríkharði Daðasyni sem skoraði gott mark. Eftir það færðist talsverð barátta í leikinn en svo fór að FH-ingar náðu að sigla fram úr á lokamínútum leiksins með tveimur mörkum. Þetta var langt í frá besti leikur FH í sumar en þeir gerðu það sem þurfti. Það virtist fremur kraftlaust framan af en hætti aldrei að spila sinn bolta og uppskáru eftir því í leikslok. Framarar reyndu hvað þeir gátu en sprungu einfaldlega á limminu á lokakafla leiksins. "FH er með hrikalega sterkt lið en mér fannst þeir ekkert betri en við í dag. Við vorum að gera betur en í undanförnum leikjum, vorum að berjast og þeir áttu í vandræðum með okkur. Hinsvegar refsa þeir fyrir hver einustu mistök og við gerðum þrjú í dag. Það þarf ekki mörg stig til að rífa sig frá botninum og það er bara skemmtileg barátta framundan," sagði Þórhallur Dan eftir leik. Auðun Helgason skoraði annan leikinn í röð og var ánægður með stigin þrjú. "Fullkomin hornspyrna frá Óla og ég náði að klára. Ég er ánægður með þessa þrautseigju í okkur. Við erum ekkert að spila neitt alltof vel og einbeitingin var ekki í fullu lagi. Við héldum þó áfram að skapa og náðum þremur stigum. Þetta var því góður sigur á frekar slökum degi. Framararnir voru erfiðir en við höldum áfram á beinu brautinni og vonandi klárum við þetta mót sem fyrst," Sagði Auðun Helgason.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Sport Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Fótbolti Fleiri fréttir Caitlin Clark aftur meidd og vandaði dómaranum ekki kveðjurnar Biðin eftir Meistaravöllum styttist um einn dag Bradley Beal til Clippers Eyjakonur gjörsigruðu Gróttu Bellingham í aðgerð á öxl og missir af næstu landsleikjum Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Ítalía í undanúrslit í fyrsta sinn síðan 1997 Þúsund hjólareiðakappar þeysa um hálendið um helgina Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona „Þetta var bara byrjunin“ Hetjudáðir gegn Íslandi tryggðu henni sæti í byrjunarliðinu í kvöld Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Liverpool reynir líka við Ekitike Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Sjáðu mörkin úr geggjuðum Blikasigri Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Aukinn áhugi á EM þrátt fyrir samkeppni við FIFA Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Steven Gerrard orðinn afi Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sjá meira