Innlent

Ásókn í lóðir á Grundarfirði

"Á síðustu vikum hefur bara orðið sprenging í umsóknum fyrir byggingalóðir á Grundarfirði," segir Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri en hátt í tuttugu umsóknir hafa borist á skömmum tíma. Hún segir að íbúðarverð fari hækkandi í bænum en skortur hefur verið á lóðum undanfarin ár. Hún segir ennfremur að stöðugt atvinnulíf sé það sem trekki fólk og fyrirtæki að og svo sé bærinn að endurheimta marga gamla bæjarbúa. Þrjú stór útgerðarfyrirtæki eru á Grundarfirði og allt stefnir í að metafla verið landað þar í ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×