Innlent

Vaxtabætur skipta máli

Greiðslubyrði ungra hjóna sem kaupa þriggja herbergja íbúð í dag er meiri en ef þau hefðu keypt íbúðina í ársbyrjun 2004 segir á vef Alþýðusambands Íslands. Þetta skýrist af gríðarlegum hækkunum á íbúðarhúsnæði og gerir talsvert meira en að vega upp ávinninginn af lækkun vaxta á síðasta ári. Greiðslubyrðin hefði verið um 90 þúsund á mánuði í ársbyrjun 2004, en væri um 107 þúsund í dag. Ef ungu hjónin nytu ekki vaxtabóta, væri greiðslubyrðin aftur á móti um 130 þúsund krónur á mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×