Villepin í forsætisráðherrastól 31. maí 2005 00:01
Jacques Chirac Frakklandsforseti skipaði í gær Dominique de Villepin í embætti forsætisráðherra og fól honum að fara fyrir nýrri ríkisstjórn. Með uppstokkuninni brást Chirac við niðurlægjandi ósigri málstaðar forsetans og stjórnarliða í þjóðaratkvæðagreiðslunni um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandins. Villepin flytur úr innanríkis- í forsætisráðuneytið og kemur þar í stað Jean-Pierre Raffarin, sem lýsti yfir afsögn sinni í gær. Með Villepin kaus Chirac mann sem hann er vanur að treysta. Áður en hann varð innanríkisráðherra stýrði hann utanríkisráðuneytinu og var sem slíkur rödd Chiracs í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna er tekist var á um Íraksmálið veturinn 2002-2003. Ráðherralisti nýju stjórnarinnar verður væntanlega kynntur í dag. Nicolas Sarkozy, vinsælasti maðurinn í stjórnarliði hægrimanna, verður innanríkisráðherra, að því er náinn samherji Sarkozys, þingmaðurinn Yves Jego, sagði í útvarpsviðtali. Í frönskum fjölmiðlum höfðu verið miklar vangaveltur um hvort Sarkozy yrði aftur fenginn til liðs við ríkisstjórnina, en hann var innanríkisráðherra 2002-2004. Sarkozy er formaður Lýðfylkingarinnar UMP, flokks Chiracs, og er talinn hyggja á forsetaframboð árið 2007. Verði Sarkozy ráðherra í stjórn undir forystu þykir það tíðindum sæta, ekki síst með tilliti til þess að hann lét svo ummælt fyrir atkvæðagreiðsluna um helgina að einvörðungu menn sem hefðu gegnt kjörnu embætti - sem Villepin hefur aldrei - "hefðu rétt til að tala í nafni Frakklands". Ummælin voru túlkuð sem viðvörun Sarkozys gegn því að Villepin tæki við. Villepin tekur við erfiðu búi. Atvinnuleysi er yfir tíu prósentustigum og forystusveit franskra stjórnmála er meira og minna í sárum eftir klofning kosningabaráttunnar með og á móti stjórnarskrársáttmálanum. Sá klofningur gekk þvert á flokkslínur en sýndi ef til vill ekki síst gjá milli stjórnmálaforystunnar og almennings.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Sjá meira