Að óbreyttu skerðist lífeyririnn 30. júní 2005 00:01 "
Samkomulag við Landsbankann var gert í góðri trú á sínum tíma," segir Friðbert Traustason stjórnarformaður Líffeyrissjóðs bankamanna. Hann bætir við að að óbreyttu geti sjóðurinn ekki staðið við lífeyrisskuldbindingar sínar. "Það er hins vegar svo að samkomulagið um að setja á fót nýtt kerfi sem tryggir afkomu lífeyrissjóðsins er hvergi til skjalfest." Eigendur Landsbankans líta svo á að engar bakábyrgðir gagnvart lífeyrissjóðnum séu í gildi og svo hafi ekki verið frá því gert var upp við Lífeyrissjóð bankamanna árið 1997 í aðdraganda þess að ríkisbönkunum var breytt í hlutafélög og þeir síðan einkavæddir. Svo sem greint var frá í Fréttablaðinu í gær hefur Lífeyrissjóðurinn nú höfðað mál gegn Landsbankanum og ríkinu. Meginkrafa sjóðsins er að Landsbankinn viðurkenni bakábyrgðir vegna vaxandi skuldbindinga sjóðsins með sama hætti og var fyrir árslok 1997. Til vara krefst lífeyrissjóðurinn liðlega 2,6 milljarða króna skaðabóta vegna tjóns sem sjóðurinn telur sig hafa orðið fyrir vegna rangra útreikninga . Friðbert Traustason segir að launaskriðið í Landsbankanum frá árinu 1999 hafi verið allt annað og meira en búist var við eftir að bankinn var seldur. Gert hafi verið ráð fyrir 27 prósenta meðalhækkun til ársins 2002. Raunin hafi hins vegar orðið 48 prósenta hækkun. Lífeyrir sjóðsfélaga miðast við laun sem þeir hafa við starfslok. Hafi laun starfsmanns með langan starfsaldur hækkað verulega síðustu þrjú árin sem hann starfaði þarf sjóðurinn að standa skil á hækkuðum greiðslum til hans í takt við lokalaunin. "Sjóðurinn er yfir hættumörkum nú með 11,8 prósenta neikvæða afkomu. Okkur ber að grípa til aðgerða strax og við skríðum yfir 10 prósenta markið. Takist ekki að rétta við fjárhag sjóðsins, til dæmis með málaferlum sem við reynum nú, fáum við vafalaust tilmæli frá Fjármálaeftirlitinu um að skerða lífeyrisgreiðslur. Það verðum við að gera í síðasta lagi um næstu áramót. Aðildarfélög eins og Landbankinn verða að bera bakábyrgð. Annars er sjóðurinn dauðadæmdur," segir Friðbert Traustason.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira