Ráðherra í leyniheimsókn 30. júní 2005 00:01
Dr. Tan Sun Chen, utanríkisráðherra Taívans, kom hingað til lands í gær. Kínverskum embættismönnum gremst heimsóknin en íslensk stjórnvöld ítreka að ráðherrann sé hér einungis í einkaerindum Tan kom til landsins síðdegis í gær frá Noregi en strax við komuna til landsins þusti hann upp í bifreið með dökklituðum glerjum sem ekið var á brott í snarhasti. Að sögn kunnugra er ráðherrann hér að kynna sér land og þjóð og ætlar hann að hitta íslenska viðskipta- og skólamenn. Hann fer héðan á morgun. Íslenska ríkisstjórnin hefur engan viðbúnað vegna heimsóknarinnar og engin áform eru um að Tan hitti íslenska ráðamenn. "Þarna er um hreinræktaða einkaheimsókn að ræða sem ekki snertir á neinn máta íslensk stjórnvöld," segir Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu. Grunnt er á því góða á með ríkisstjórnum Kína og Taívan og því hafa starfsmenn kínverska sendiráðsins tjáð yfirvöldum andstöðu sína við heimsóknina. "Þeir hafa lýst yfir vissum áhyggjum af þessu og hvaða áhrif þetta gæti haft," segir Gunnar Snorri. Hann kvaðst hins vegar hafa ítrekað að Íslendingar viðurkenndu aðeins eitt Kína. "Samskipti Íslands og Kína eru svo góð og vinsamleg og hafa verið í svo ágætum farvegi að ég hef fulla trú á að þeir skilji að þetta er ekki illa meint." Kínverska sendiráðið vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira