OR utan við staðsetningardeilur 30. júní 2005 00:01
Orkuveita Reykjavíkur vildi ekki blanda sér í umræður um staðsetningu nýrra álvera á landsbyggðinni þegar forstjóranum var meinað að skrifa undir viljayfirlýsingu við Norðurál um orkusölu til nýs álvers í Helguvík. Orkuveitan skrifaði í gær undir 60 milljarða króna samning við Alcan á Íslandi og full sátt var um málið innan stjórnar Orkuveitunnar. Stjórnarformaðurinn segir eðlismun á málunum. Forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur var á síðustu stundu meinað að skrifa undir viljayfirlýsingu um álver í Helguvík í síðasta mánuði. Ástæðan var ágreiningur innan R-listans um málið, en orkuveitan hafði unnið að undirbúningi málsins með Norðuráli, Reykjanesbæ og Hitaveitu Suðurnesja. Nú bregður hinsvegar öðruvísi við, því í gær skrifaði orkuveitan undir 60 milljarða krónu orkusölusamning til Alcan á Íslandi vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Aðspurður um það hvað hafi breyst segir Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, að það sé mikill eðlismunur á því hvort verið sé að selja orku í nýtt álver eins og í Helguvík eða hvort verið sé að selja orku til stækkunar álvers sem þegar er fyrir, eins og í Straumsvík. Hann segir muninn vera þann að Borgarfulltrúar R-listans voru sammála um það á sínum tíma að ekki væri rétt að borgaryfirvöld væru að blanda sér í staðsetningu á nýju álveri. Hvort það yrði reist í Helgu eða fyrir norðan. Hann sagði að hér væri um stækkun að ræða á álveri sem er fyrir á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir þessa stækkun skipta máli fyrir atvinnulífið á svæðinu auk þess sem orkuveitan muni fá góðan hagnað af þessu. Hann segir ástæðu þess að ekki var samið um orkusölu við vera þá að að orkuveitan vildi ekki blanda sér í deilur um staðsetningu álversins í Helguvík. Hann sagði jafnframt að full sátt hefði verið um samninginn sem gerður var við Alcan. Hann sagði jafnframt að allir stjórnarmenn hefðu skrifað undir.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira