Raggagarður opnaður á Súðavík 6. ágúst 2005 00:01
Kærleikur og ást er hvatinn að fyrsta fjölskyldugarði Vestfirðinga sem opnaður var í Súðavík í dag. Vilborg Arnarsdóttir átti sér draum um stað þar sem fjölskyldur gætu átt saman góðar stundir og nú hefur hún látið hann rætast með góðum stuðningi. Garðurinn, sem nefnist Raggagarður, er tileinkaður minningu sonar Vilborgar sem lést ungur að aldri í bílslysi. Sumir láta sér nægja að dreyma en aðrir framkvæma. Vilborg Arnarsdóttir, oftast kölluð Bogga, tilheyrir síðastnefnda hópnum. Eftir tveggja ára vinnu er Raggagarður orðinn að veruleika, staður þar sem fjölskyldur geta skemmt sér saman. Hvatinn er að heiðra minningu Ragnars Freys Vestfjörð, sonar Vilborgar sem lést í bílslysi í Súðavík árið 2001 sautján ára gamall. Hugsunin með garðinum er að fólk eigi að njóta þess sem það hefur, samverustunda með ástvinum og fjölskyldu. Aðspurð hvernig hugmyndunum hafi verið tekið í upphafi segir Vilborg að nokkrar efasemdaraddir hafi heyrst en almennt hafi þeim verið tekið vel. Hún hafi ætlað að gera leiktæki í garðinum úr rekavið en það megi ekki lengur heldur verði að kaupa öll leiktæki. Kostnaður verkefnisins sé kominn í 20 milljónir og því hafi verið ákveðið að stofna félag um garðinn. Í dag var fyrsti áfangi garðsins opnaður og því er enn töluverð vinna eftir. Miðað við áhuga heimamanna á verkefninu er þó engin hætta á að verkið strandi hér. Vilborg segir að það sé auglýstur vinnudagur í þorpinu og þá mæti frá 6 til 25 manns í hvert sinn til að leggja hönd á plóginn.
Fréttir Innlent Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Sjá meira