Lóðum þinglýst til varnar braski 22. febrúar 2005 00:01
Borgarráð tekur á næstunni ákvörðun um hvort 30 lóðum undir einbýlishús við Lambasel í Breiðholti verði úthlutað með hefðbundnum hattardrætti eða haldið verði útboð eins og gert var í Norðlingaholti. Lóðirnar verða fyrst auglýstar í Stjórnartíðindum og verður það einhvern tímann á næstunni. Þegar lóðunum hefur verið úthlutað verður þeim þinglýst hjá sýslumannsembættinu til að koma í veg fyrir að lóðarhafi selji lóðina aftur í stað þess að skila henni aftur til borgarinnar ef honum snýst hugur um húsbygginguna. Þannig hyggjast borgaryfirvöld tryggja að lóðarhafi byggi á lóðinni. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulags- og bygginganefndar, segir að verið sé að skoða úthlutunarleiðirnar tvær, m.a. með tilliti til þess hvernig hagsmunum borgarbúa verði best borgið á tímum hækkandi lóðaverðs. Borgaryfirvöld fylgjast grannt með umræðunni um lóðaverð og því hvað þessi rúmlega tíundi hluti af fasteignamarkaðnum hefur á aðra hluta markaðarins. Með því að þinglýsa lóðunum segir Dagur að verði neglt fyrir þá glufu að fjármálafyrirtæki eða verktakar geti fengið lóðirnar og selt síðan aftur. "Ekki nema verktakar fái lóð sem einstaklingar og ætli að búa þarna sjálfir. Það verða allir að vera jafnir í þess." Verð lóðanna hefur ekki verið ákveðið enda getur það mótast af því hvaða úthlutunarleið verður farin. Dagur bendir á að lóðir séu verðmætar í eðli sínu og telur ekkert endilega um brask að ræða. "Vandinn í þessu snýr að því að þarna eru stjórnvöld að úthluta gæðum og þá vill maður gera það á eins réttlátan hátt og hægt er og reyna að sníða leikreglurnar þannig að það sé ekki einn umfram annan að fá einhver gæði ókeypis sem hann síðan selur næsta manni."
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira