Lögfræðiálit um Ríkisendurskoðun 29. júní 2005 00:01
Lögfræðiálit sem stjórnarandstaðan kallaði eftir vegna einkavæðingar ríkisbankanna og aðkomu forsætisráðherra að henni verður kynnt á morgun. Lögfræðingarnir draga í efa að Ríkisendurskoðun hafi sinnt hlutverki sínu. Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður vann álitið ásamt öðrum lögfræðingi, Birgi G. Magnússyni, lektor í lögfræði við Háskólann á Bifröst. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna neituðu að svara öllum spurningum um innihald álitsins í dag en sögðu að það yrði að öllum líkindum sent út á fjölmiðla á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu snýr álitið að skýrslu Ríkisendurskoðunar um einkavæðingu bankanna á sem kom út árið 2002 og minnisblaði ríkisendurskoðanda um hæfi Halldórs Ásgrímssonar til að koma á málinu nú í byrjun sumars. Ýmis lagaleg álitaefni eru þar að mati stjórnarandstöðunnar sem nauðsynlegt er að svör fáist við. Þingmenn hafa ekki fengið álitið í hendur heldur einungis formenn stjórnarandstöðuflokkanna. Búist er við að þeir fái að kynna sér það í kvöld áður en það verður gert opinbert. Ekki var spurt beint um lagalegt álit lögfræðinganna á hæfi forsætisráðherra til að koma að málinu heldur leitað svara við nokkurum spurningum, þar á meðal hversu mikil eignatengsl þurfi að vera til að menn teljist vanhæfir og svo framvegis. Leitast er við að svara þessum spurningum út frá stjórnsýslulögum. Samkvæmt stjórnsýslulögum mega eignatengsl ekki vera til staðar til að menn teljist hæfir. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er bent á það í álitinu að Ríkisendurskoðun hafi farið í málið árið 2002 en látið hjá líða að skoða þessi eignatengls forsætisráðherra þótt upplýsingar hafi þá þegar komið fram í fjölmiðlum. Dregið er í efa að Ríkisendurskoðun hafi sinnt hlutverki sínu sem skyldi við rannsókn málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Sjá meira