Segir ummæli ósmekkleg og ótímabær 11. apríl 2005 00:01
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að ummæli Össurar Skarphéðinssonar formanns um að fátt nýtt komi frá framtíðarhópi flokksins séu ósmekkleg og ótímabær. Össur lét ummælin falla í Silfri Egils á Stöð 2 í gær þegar hann gagnrýndi vinnubrögð framtíðarhópsins, en Ingibjörg Sólrún fer fyrir hópnum. Ljóst er að aukin harka er kominn í kosningaslaginn fyrir landsfund Samfylkingarinnar sem haldinn verður í næsta mánuði, en bæði Ingibjörg Sólrún og Össur gefa kost á sér í formannsembættið. Ingibjörg segir ummæli formannsins setja vinnu framtíðarhópsins í erfiða stöðu. Hún hafi ekki heyrt þetta frá honum áður og henni finnist þetta ekki tímabær eða smekkleg ummæli. Það eigi ekki að ræða þessi mál opinberlega vegna þess að framtíðarhópurinn hafi ekki enn skilað af sér sinni vinnu og því eigi eftir að koma í ljós hvað komi út úr henni. Hópurinn vinni að tillögugerð og kynni þær á landsfundi. Það sé síðan flokksmanna á landsfundinum að ákveða hvað gert verði í framhaldinu. Ingibjörg bendir enn fremur á að þetta snúi ekki einungis að henni því að á vegum framtíðarhópsins hafi hátt í 100 manns unnið að stefnumótun a ýmsum sviðum. Sú vinna sé ekki eign hennar heldur flokksins og hið sama gildi um tillögurnar. Það sé landsfundar að ákveða hvað gert verði með þetta.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira