Skyndilokanir vegna kolmunnaveiða 22. júní 2005 00:01 MYND/Eiríkur
Hafrannsóknastofnun hefur nú í fyrsta sinn þurft að grípa til skyndilokana vegna kolmunnaveiða þar sem óheyrilega mikið af þorski hefur veiðst með kolmunnanum, utan allra kvóta. Auk þess endar eðalþorskurinn svo í bræðslu eins og hver annar skítfiskur. Fyrir utan að þessar þorskveiðar bætast við þær veiðar, eða kvóta, sem vísindamenn og stjórnvöld ákveða í verndunarskyni við þorskinn, er honum dælt upp úr skipunum með kolmunnanum og beint í bræðslu þar sem aðeins brotabrot fæst fyrir hann miðað við að vinna hann til manneldis. Þetta spillir því bæði verðmætum og verndunaraðgeðrum. Þau svæði sem nú hefur verið lokað bætast við svæði sem friðað var í fyrra með reglugerð og er á milli Íslands og Færeyja og nær m.a. yfir Rósagarðinn svonefnda. Dæmi eru um að 44 tonn af bolfiski hafi mælst í þúsund tonna kolmunnafarmi og allt að eitt tonn af bolfiski hafi veiðst á togtíma sem gæti þýtt allt að 20 tonn á sólarhring utan kvóta. Það er reyndar ekki allt þorskur því ufsi hefur verið í meirihluta en hlutfall þorsks fer vaxandi. Þetta er tífalt meira magn en viðmiðunarreglur segja til um að megi veiðast af bolfiski með kolmunnanum. Til að koma enn frekar í veg fyrir þessar veiðar tekur ný reglugerð gildi eftir hálfan mánuð þar sem kolmunnaskipin verða skylduð til að kaupa sér eða leigja kvóta af bolfiski á móti þeim bolfiski sem þau veiða með kolmunnanum svo veiðistjórnunaráform og verndunarhagsmunir raskist ekki.
Fréttir Innlent Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Fleiri fréttir „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Sjá meira