Innlent

Fær nafn sitt ekki skráð

Fimm ára gömul stúlka í Neskaupstað er ekki bara stúlka heldur er hún skráð sem Stúlka Steinþórsdóttir í þjóðskrá. Um árabil hefur faðir hennar barist fyrir því að fullt nafn hennar verði skráð í þjóðskrá en er sagt að það sé of langt. Steinþór Frank Michelsen hefur barist fyrir því í fimm ár að fullt nafn dóttur hans fáist skráð í þjóðskrá. Nafnið sem er þrjátíu starfir auk tveggja stafabila er of langt fyrir skráningarforrit fyrir þjóðskrárinnar sem aðeins bíður upp á þrjátíu og eitt stafabil. Að sögn Steinþórs hafði starfsmaður þjóðskrár samband og bað foreldra súlkunnar, sem heitir Sveinbjörg Dione Steinþórsdóttir, að breyta nafninu þannig að hún tæki upp ættarnafnið Michelsen. Þeir voru hins vegar ekki reiðubúnir til þess. Í vor lofaði Davíð Oddsson utanríkisráðherra því á þingi að laga þetta í sumar. Síðan hefur ekkert gerst. Sveinbjörg var skírð þann fyrsta janúar árið 2000 og fyrst til að vera skírð það árið. Í fyrstu var hún skráð óskírð í þjóðskrá en það vildi Steinþór ekki sætta sig við og er Sveinbjörg upp frá því skráð Stúlka Steinþórsdóttir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×