Hlýnun sjávar kostaði 75 milljónir 15. september 2005 00:01
Fiskey varð fyrir verulegu áfalli í fyrra en þá fóru 300 þúsund seiði forgörðum vegna hlýnunar sjávar við Dalvík en þaðan er sjórinn tekinn í eldiskerinn. Þessi hlýnun kostaði fyrirtækið um 75 milljónir króna að sögn Arnars Freys. Til að bregðast við þessu verður áframeldið í Þorlákshöfn lagt niður en þeim mun meira lagt upp úr seiðaútflutningi. "Við framleiðum meira en helming allra lúðaseiða í heiminum," segir Arnar Freyr," og engin breyting verður þar á þó stöðin loki í Þorlákshöfn. Við höfum klakfiskastöð okkar á Dalvík, þar sem hrygningin fer fram, en svo fer seiðaframleiðslan fram í stöð okkar á Hjalteyri. Í Þorlákshöfn er svo áframeldið þar sem lúðan var alinn upp í slátursstærð, þá er hún um fimm kíló og það tekur um 3-4 ár að ná henni í þá stærð." Arnar segir mörg tækifæri blasa við í seiðaútflutningi því markaðurinn fari vaxandi í Noregi sem síðustu ár hefur verið helsti útflutningsmarkaður Fiskeyjar. Á síðasta ári voru einnig seld 25 þúsund seiði til Kína og nú eru viðræður í gangi um að seld verði allt að 200 þúsund seiði þangað síðar í haust. Ekki er þó allt lúðueldi úr sögunni hér á landi því Silfurstjarnan er með lúðueldi við Axarfjörð. Benedikt Kristjánsson framkvæmdastjóri segir að þeir hafi byrjað á lúðueldinu fyrir tæpu ári og eru nú með 50 þúsund lúður í kerjum. "Við sjáum ekki fram á að geta starfrækt eldisstöðina í Þorlákshöfn öllu lengur þannig að við munum leggja hana niður innan tíðar," segir Arnar Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Fiskeyjar ehf., sem einnig er með eldisstöðvar á Dalvík og Hjalteyri. Fimm manns vinna við stöðina og vonast Arnar Freyr til að sem flestir þeirra geti unnið þar áfram en hún verður væntanlega leigð undir lax- eða bleikjueldi.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira