Mildi að ekki fór verr 14. september 2005 00:01
Mildi þykir að aðeins einn skyldi farast þegar beljandi flóð og aurskriður féllu á íbúðarhverfi í Björgvin í Noregi, síðastliðna nótt. Skriðan féll um klukkan tvö í nótt þegar flestir voru í fastasvefni. Mikil skelfing greip um sig þegar fólk reyndi að flýja úr húsum sínum og þurftu sumir foreldrar að láta börn sín stökkva út um glugga á annarri hæð þegar þau yfirgáfu húsin. Erfitt reyndist fyrir björgunarmenn að ná íbúum sem lentu í skriðunum upp úr aurnum þar sem mikil hætta var á að hús kynnu að hrynja. Þeir unnu þó þrekvirki þegar þeir grófu íbúana upp með berum höndum og skóflum. Fjöggurra ára gömul stelpa og móðir hennar eru í lífshættu auk þess sem flytja þurfti sjö aðra íbúa á sjúkrahús. Úrhellisrigning hefur verið í Vestur-Noregi í gær og í dag í kjölfar leifa af fellibyljunum Maríu og Nate sem gengið hafa þar yfir. Um tíma var óttast að verslunarmiðstöð kynni að falla saman en það tókst að koma í veg fyrir það. Vatnselgur á götum gerir samgöngur erfiðar á svæðinu auk þess sem aurskriður hafa fallið á vegi við Björgvin.
Erlent Fréttir Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Erlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Fleiri fréttir Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Sjá meira