Erlent

Taka ekki lengur mark á vopnahléi

Bresk stjórnvöld segja að þau taki ekki lengur mark á vopnahléi sambandssinna á Norður-Írlandi. Miklar óeirðir urðu í Belfast um síðustu helgi þegar mótmælendur reyndu að komast inn í hverfi kaþólikka til þess að minnast sigra sem þeir unnu fyrir mörgum öldum. Mótmælendur hafa árvisst reynt að ögra kaþólikkum með þessum göngum sínum en aðrar eins óeirðir hafa ekki orðið í meira en áratug. Lögreglan segir ljóst að öfgamenn hafi verið búnir að undirbúa átök sem stóðu í marga daga og sendu tugi lögreglumanna á sjúkrahús. Forystumenn mótmælenda hafa ekkert gert til að stilla til friðar og breska ríkisstjórnin hefur brugðist við með því að lýsa vopnahlé þeirra ógilt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×