Veitt sé inni á hvalaskoðunarsvæði 9. ágúst 2005 00:01
Hvalaskoðunarskipið Hafsúlan sigldi nýlega fram á hvalshræ nálægt innsiglingunni í Reykjavíkurhöfn. Framkvæmdastjóri Hafsúlunnar segir vísindaveiðarnar komnar inn á svæði hvalaskoðunarskipanna gegn loforðum stjórnvalda. Guðmundur Gestsson, framkvæmdastjóri Hafsúlunnar, segir vísindaveiðarnar hafa slæm áhrif á starfsemi hvalaskoðunarskipa. Það sé sérstaklega slæmt að veiðarnar séu inni á hvalaskoðunarsvæðum. Þetta viti forsvarsmenn Hafsúlunnar vegna þess að veiðimennirnir hafi spurt hvort farið sé í aukahvalaskoðunarferðir eftir klukkan átta. Það sé enginn annar tilgangur með þeirri spurningu en sá að þeir fari aftur út og veiði hvali á svæðunum þar sem hvalir hafi verið skoðaðir um daginn. Að undanförnu hefur sú staða komið upp að nálgist skoðunarskip hrefnu er hún fljót að láta sig hverfa. Guðmundur segir að þessar veiðar séu gegn öllum loforðum stjórnvalda um að fara ekki inn á þau svæði sem hvalaskoðunarskipin færu um. „Það gerur aldrei farið saman að skjóta dýr á sama svæði og við erum að skoða þau,“ segir Guðmundur. Gæfu dýrin, svo kallaðir skoðarar sem eru hluti af hrefnustofninum, eru söluvara skoðunarskipanna. Þessi dýr eru jafnframt auðveldasta bráðin fyrir veiðarnar. Í skýrslu Hafrannsóknarstofnunarinnar í fyrra kom í ljós að færri hvalir veiddust í dýpri höfum en ætlað var og segir Guðmundur að til að fylla upp í kvótann hafi veiðar færst innar og upp undir land og gæti hræið sem fannst á dögunum mögulega tengst þessu. Guðmundur segir enn fremur að hvalveiðimenn hafi verið í vandræðum með að ná hrefnu um allt landa nema á Faxaflóa. Þar hafi verið mikið æti í allt sumar og hvalveiðimenn fylli upp í kvótann með því að fara inn á þau svæði sem hvalaskoðunarskipin fari um, annars væru þeir ekki að spyrjast fyrir um ferðir hvalaskoðunarskipanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Innlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Innlent Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Erlent Fleiri fréttir Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag Sjá meira